Laus störf
VÍS er framúrskarandi vinnustaður
með einstaka vinnustaðamenningu. Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna — í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki. VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.
Í anda jafnréttis- og jafnlaunastefnu okkar hvetjum við öll þau sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni.
Allar umsóknir hjá VÍS eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.