Kvörtun eða hrós

Að hlusta á rödd viðskipta­vina VÍS er lykillinn að því að veita framúrsk­ar­andi þjón­ustu. Við tökum vel á móti ábend­ingum og tillögum að því sem betur mætti fara og einsetjum okkur að leysa öll mál á farsælan og skjótan máta. Með því viljum við koma í veg fyrir að sambærileg atvik endur­taki sig.

Við höfum sett okkur stefnu og verklags­reglur um meðhöndlun kvartana í samræmi við 9. og 10. gr. laga nr. 100/2016 um vátrygg­inga­starf­semi og reglna nr. 353/2022 um eðli­lega og heil­brigða viðskipta­hætti, samskipti við viðskipta­vini og meðhöndlun kvart­ana. Í stefn­unni er verklag við móttöku kvartana útskýrt en tilgangur þess er að tryggja samræmi, skil­virkni og sann­gjarna afgreiðslu slíkra erinda.

Senda kvörtun eða hrós