Greiðsluleiðir
Þú getur valið um að greiða tryggingarnar þínar með því að fá greiðslukröfu í banka eða greiða með kreditkorti samkvæmt boðgreiðslusamningi. Velja greiðsluleið.
Greiðsludreifing
Hægt er að greiða með eingreiðslu eða dreifa greiðslum á þrjá, sex, níu eða tólf mánuði. Kostnaður við greiðsludreifingu miðast við 11,5% ársvexti.
- Kostnaður við þriggja mánaða greiðsludreifingu er 0,96% af verði.
- Kostnaður við sex mánaða greiðsludreifingu er 2,4% af verði.
- Kostnaður við níu mánaða greiðsludreifingu er 3,83% af verði.
- Kostnaður við tólf mánaða greiðsludreifingu er 5,27% af verði.
Fyrirtæki og viðskiptavinir okkar sem eru í brons, silfur, gull eða demants vildarþrepi fá afslátt af kostnaði við greiðsludreifingu. Þú getur séð upplýsingar um stöðu þína í vildarkerfi VÍS í VÍS appinu. Gjaldskrá gildir frá 1. nóvember 2022.
Greiðslugjald
- Ekkert greiðslugjald er á sjálfvirkri skuldfærslu kreditkorts.
- Greiðslugjald fyrir kröfur sem stofnaðar eru í netbanka er 190 kr.
- Greiðslugjald fyrir heimsendan greiðsluseðil er 390 kr.
Innheimtukostnaður
- Dráttarvextir eru samkvæmt útgefnum dráttarvöxtum Seðlabanka Íslands.
- Innheimtuferli hefst þegar reikningur er kominn fimm daga yfir eindaga.
- Motus og Lögheimtan innheimta gjaldfallin iðgjöld fyrir hönd VÍS. Kostnaður vegna innheimtubréfa er samkvæmt gjaldskrá Motus og Lögheimtunnar.