
Forvarnaráðstefna VÍS 2020
Hvað brennur á þínu fyrirtæki?
Hilton Reykjavík Nordica 12. febrúar kl. 13-16
Forvarnaráðstefna VÍS 2020
G.RUN hlaut Forvarnaverðlaun VÍS 2020
Forvarnaverðlaun VÍS voru afhent í 11 skipti á ráðstefnunni. Verðlaunin hlýtur það fyrirtæki sem þykir skara fram úr í öryggismálum og er öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd.
Að þessu sinni hlaut sjávarútvegsfyrirtækið G.RUN forvarnaverðlaunin. G.RUN er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í veiðum og vinnslu á bolfiski.
Í upphafi árs 2019 opnaði fyrirtækið nýja og vel útbúna fiskvinnslu þar sem öryggismálin voru sett í fyrsta sæti. Fiskvinnslan er ein sú tæknilegasta á landinu og er með eitt öflugasta brunavarnarkerfi sem völ er á. Að auki er fiskvinnslan útbúin tæknilegum öryggis- og forvarnabúnaði. Aðbúnaður og öryggi starfsmanna er til mikillar fyrirmyndar og endurspeglar umhyggju fyrir starfsfólkinu.

Garri fékk viðurkenningu fyrir árangur í öryggismálum
Hjá Garra er mikil áskorun fólgin í því að fyrirtækið afhendir mikið magn vöru af lager á skömmum tíma.
Nýliða- og öryggisþjálfun er til fyrirmyndar og búið er að gera starfsumhverfi eins öruggt og best er á kosið. Umferðarreglur eru á lagergólfi, speglar á blindhornum og starfsfólk í sýnileikafatnaði.
Brunavarnir í húsinu eru eins og best verður kosið og húsið í heild snyrtilegt vegna þess að stjórnendur leggja ríka áherslu á góða umgengni.

McRent fékk viðurkenningu fyrir árangur í öryggismálum
McRent er húsbílaleiga sem leigir bíla sína fyrst og fremst til erlendra ferðamanna. Það er mikil áskorun fólgin í því að fræða erlenda gesti um aðstæður á Íslandi, vegakerfi og veðurfar.
McRent er með skýra sýn á öryggismál og afhendir ekki viðskiptavinum lykla af bílnum fyrr en búið er að fara yfir hvert viðkomandi ætlar að fara, helstu mögulegar hættur sem geta orðið á leið hans þ.m.t. hættulega vindastaði.
Ökutæki McRent eru mjög snyrtileg og tryggt er með reglubundnu viðhaldi að þau séu eins örugg og kostur er.

Myndbönd frá ráðstefnunni
Dagskrá
Fundarstjóri

Hildur Ingvarsdóttir
Skólameistari Tækniskólans










