Fyrirlestrar á forvarnaráðstefnu VÍS 2024
Á dagskrá voru sex erindi ásamt sjö stuttum myndböndum með viðtölum við stjórnendur ýmissa fyrirtækja, stofnanna og samtaka.
Einnig veittum við forvarnaverðlaun VÍS en í ár veittum við bæði verðlaun í flokki minni og stærri fyrirtækja. Forvarnaverðlaun VÍS hljóta þau fyrirtæki sem þykja skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Verðlaunað er fyrir sterka öryggismenningu þar sem unnið er markvisst í að efla öryggisvitund og öryggishegðun.
Fyrirlestrarnir á ráðstefnunni í ár báru yfirheitið Snúast hjólin í átt að árangri?












