Frítíma­slys

Okkur þykir leitt að heyra af slys­inu. Slysið gæti verið bóta­skylt úr frítíma­slysa­trygg­ingu. Frítíma­slysa­trygging er innifalin í heim­il­is­trygg­ing­unni þinni en munur er á bóta­fjár­hæðum eftir því hvaða fjár­hæðir eru valdar við trygg­inga­töku. Þú getur séð bóta­fjár­hæðir þínar með því að skrá þig inn á heima­síðuna okkar eða skoðað trygg­inguna í VÍS appinu.

Hér höfum við tekið saman helstu bóta­þætti frítíma­slysa­trygg­ingar og upplýs­ingar um næstu skref sem við vonum að nýtist þér. Til þess að við getum haldið áfram með málið þitt þurfum við að fá afrit af sjúkra­skrá frá slys­degi til dagsins í dag með tilliti til áverkans frá þeirri heil­brigð­is­stofnun sem þú leit­aðir til.

Réttur þinn á bótum er metinn þegar okkur hafa borist viðeig­andi lækn­is­fræðileg gögn.

Bótaþættir og næstu skref

Hafðu samband eða kíktu í heim­sókn ef þú hefur einhverjar spurn­ingar — við aðstoðum þig með ánægju.