Fréttasafn
|08.07.2026
VÍS styður aukna þátttöku í brjóstaskimun
Við hjá VÍS erum stolt af því að hafa stutt verkefni sem hafði það að markmiði að bæta aðgengi að brjóstaskimun með þróun rafrænnar tímabókunar í Landspítala-appinu.

Lausnin er í áframhaldandi þróun þó svo hún sé komin í fulla notkun en hún gerir konum kleift að bóka, breyta eða afbóka skimunartíma á einfaldan hátt eftir að boðsbréf hefur borist.
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein kvenna á Íslandi. Á hverju ári greinast um 250–300 konur með sjúkdóminn og talið er að ein af hverjum níu til tíu konum greinist með brjóstakrabbamein einhvern tíma á ævinni.
Snemmgreining skiptir sköpum þegar kemur að meðferð og batahorfum. Því er mikilvægt að sem flestar konur taki þátt í reglubundinni brjóstaskimun þegar þeim er boðið.
Innleiðing lausnarinnar hefur þegar skilað jákvæðum árangri. Nú bókar um helmingur þeirra kvenna sem sækja brjóstaskimun tíma sinn í gegnum Landspítala-appið, sem sýnir að aukið aðgengi og einfaldari þjónusta getur haft raunveruleg áhrif á þátttöku.
Aukin þátttaka í brjóstaskimun getur stuðlað að því að fleiri tilfelli greinist á fyrstu stigum, þegar meðferð er oft árangursríkari og horfur betri. Það er mikilvægt skref í átt að bættri heilsu og auknum lífsgæðum kvenna.