Fréttasafn

|

14.07.2026

VÍS og HDSÍ áfram í samstarfi

VÍS og Hand­knatt­leiks­dóm­ara­sam­band Íslands (HDSÍ) hafa endur­nýjað styrkt­ar­samning sinn og halda þannig áfram farsælu samstarfi sem staðið hefur yfir síðustu ár.

Anton Gylfi Pálsson formaður HDSÍ t.v. og Trausti S. Hilmisson markaðsstjóri VÍS t.h.

Hjá VÍS er lögð áhersla á að styðja við verk­efni og aðila sem stuðla að öryggi, ábyrgð og heil­brigði. Dómarar gegna þar lykil­hlut­verki. Með fagmennsku sinni, þekk­ingu og yfir­vegun skapa þeir umgjörð sem stuðlar að því að leikir fari fram á sann­gjarnan, öruggan og skipu­lagðan hátt.

„Við hjá VÍS erum stolt af því að styðja við Hand­knatt­leiks­dóm­ara­sam­band Íslands og það mikil­væga starf sem dómarar vinna á hverjum degi. Þeir leggja sitt af mörkum til þess að skapa öruggt og rétt­látt keppn­is­um­hverfi fyrir leik­menn, þjálfara og áhorf­endur og eiga stóran þátt í að efla hand­boltann á Íslandi,“ segir Trausti S. Hilm­isson mark­aðs­stjóri VÍS.

Samstarfið endur­speglar sameig­inleg gildi VÍS og HDSÍ um fagmennsku, ábyrgð og öryggi. Með endur­nýjun samn­ingsins er lagður grunnur að áfram­hald­andi öflugu samstarfi sem styður við mikil­vægt hlut­verk dómara í íslensku hand­knatt­leiks­sam­fé­lagi.

VÍS óskar HDSÍ og öllum dómurum landsins góðs gengis á komandi keppn­is­tíma­bili.

Fréttasafn
Deila frétt