Fréttasafn
|02.09.2026
VÍS gefur Slysavarnaskóla sjómanna flotbjörgunarbúninga
VÍS hefur í sextánda sinn gefið Slysavarnaskóla sjómanna tíu nýja flotbjörgunarbúninga. Búningarnir eru mikilvægur hluti af öryggisbúnaði skólans og nýtast við verklega þjálfun sjómanna í björgun og viðbrögðum við neyðartilvikum á sjó.

Gjöfin markar 16 ára samfellt samstarf VÍS og Slysavarnaskóla sjómanna. VÍS hefur árlega lagt skólanum til tíu flotbjörgunarbúninga og stuðlar gjöfin að því að nemendur hafi aðgang að öruggum og vel viðhöldnum búnaði við þjálfun sína.
„Við hjá VÍS erum afar ánægð með það trausta samband sem hefur skapast við Slysavarnaskóla sjómanna á undanförnum 16 árum. Öryggi sjómanna er okkur hugleikið og það er ánægjulegt að geta með þessum hætti stutt við mikilvægt starf skólans og þjálfun sjómanna,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS.
Bogi Þorsteinsson, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, segir árlega gjöf VÍS skipta skólann miklu máli.
„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa flotbjörgunarbúninga sem eru í fullkomnu lagi. Nemendur okkar nota búningana við verklega þjálfun og við viljum auðvitað að öryggisbúnaður sé öruggur og í góðu ásigkomulagi. Við erum því afar þakklát VÍS fyrir þennan mikilvæga stuðning, ár eftir ár,“ segir Bogi.
Slysavarnaskóli sjómanna gegnir mikilvægu hlutverki við að efla öryggi sjómanna og undirbúa þá fyrir viðbrögð við slysum og öðrum hættum sem geta komið upp á sjó. Góður og áreiðanlegur öryggisbúnaður er þar grundvallaratriði og tryggir að nemendur fái raunhæfa og örugga þjálfun.