Fréttasafn
|27.05.2026
Þegar trampólínið er komið upp
Trampólín getur verið frábær afþreying fyrir börn, en mikilvægt er að huga vel að öryggi til að koma í veg fyrir slys.

Á hverju sumri verða óhöpp sem oft má rekja til þess að einföldum reglum er ekki fylgt.
Staðsetning
Trampólínið standi á sléttu og stöðugu undirlagi.
Best er að hafa mjúkt undirlag í kring, t.d. gras eða höggdeyfandi mottur.
Tryggja þarf gott öryggisbil í kring og forðast harða hluti eins og steina, girðingar eða tré.
Festa trampólínið vel niður svo það hreyfist ekki þegar hoppað er á því eða þegar hvessir.
Uppsetning og búnaður
Fylgja skal leiðbeiningum framleiðanda við uppsetningu.
Nota á öryggisnet sem nær allan hringinn.
Gæta þarf að því að gormar séu heilir og ekki misstífir og setja þarf hlíf yfir þá.
Skoða skal búnaðinn reglulega yfir sumarið og laga ef eitthvað bilar.
Leikreglur
Öryggi barna er sameiginlegt verkefni foreldra og barna. Gott er að setja niður reglur trampólínsins með börnunum, útskýra af hverju þær eru og minna reglulega á þær. Því skýrari sem reglurnar eru og því betur sem börnin skilja ástæðuna fyrir þeim, því líklegra er að þau fylgi þeim.
Fara úr skóm áður en farið er á trampólínið.
Aðeins eitt barn hoppi í einu.
Heljarstökk og aðrar kúnstir geta verið varasamar.
Boltar og annað dót á trampólíninu auka líkur á óhöppum og slysum.
Nota stiga til að fara af trampólíninu en ekki stökkva niður.
Útskýra hvað gera eigi ef þau missa jafnvægi eins og að reyna að beygja í hné.