Fréttasafn

|

05.08.2026

Sólmyrkv­agler­augu VÍS búin

Við hjá VÍS viljum þakka fyrir frábærar viðtökur við sólmyrkv­agler­aug­unum sem við höfum verið að dreifa að undan­förnu á skrif­stofum okkar sem og í appinu. Áhuginn hefur verið það mikill að þau eru búin hjá okkur.

Ef þú átt eftir að útvega þér viður­kennd sólmyrkv­agler­augu fyrir sólmyrkvann getur þú nálgast þau m.a. á solmyrkv­agler­aug­u.is. Við mælum með að tryggja þér gler­augu sem allra fyrst fyrir almyrkvann 12. ágúst.

Samkvæmt Sævari hjá solmyrkvi2026.is duga venjuleg sólgler­augu alls ekki til að horfa á sólmyrkv­ann. Viður­kennd sólmyrkv­agler­augu draga úr birtu sólar um allt að 100.000 sinnum, á meðan venjuleg sólgler­augu draga aðeins lítil­lega úr birt­unni og veita ekki nægi­lega vörn.

Mikil­vægt er að horfa aldrei beint í sólina án viður­kenndra sólmyrkv­agler­augna þar sem það getur valdið varan­legum augnsk­aða.

Við hvetjum eins alla á höfuð­borg­ar­svæðinu til að kynna sér götu­lok­anir sem verða þann 12. ágúst

 

Fréttasafn
Deila frétt