Fréttasafn

|

20.08.2026

Skólar hefjast og umferðin þéttist

Þegar skólar hefjast að nýju eftir sumarfrí þéttist umferðin og fleiri börn eru á ferð­inni. Mikil­vægt er að gera ráð fyrir lengri ferða­tíma, sýna þolin­mæði og aka af sérstakri aðgát, ekki síst í nágrenni skóla og á þeim leiðum sem börn fara gjarnan til og frá skóla. 

Margir grunn­skóla­nem­endur eru að hefja skóla­göngu sína og hafa takmarkaða reynslu af umferð­inni. Börn eru ekki alltaf með athyglina að fullu við umhverfið, geta tekið óvæntar ákvarð­anir, hlaupið skyndi­lega yfir götu eða gleymt sér í leik. Því þurfa ökumenn að vera vel vakandi og ávallt búnir undir hið óvænta. 

Við getum öll stuðlað að öruggari skóla­leið­um: 

  • Höfum athyglina alla við akst­urinn og leggjum símann frá okkur. 

  • Virðum hámarks­hraða, sérstak­lega nærri skólum, leik­svæðum og gang­braut­um. 

  • Stöðvum við gang­brautir og gefum vegfar­endum nægan tíma til að komast yfir. 

  • Sýnum gang­andi og hjólandi vegfar­endum ávallt tillits­semi. 

  • Gerum ráð fyrir óvæntum ákvörð­unum barna. 

  • Munum að yngstu börnin geta horfið sjónum á bak við kyrr­stæða bíla og gróð­ur. 

  • Forð­umst að leggja þannig að skyggt sé á gang­brautir eða sýn ökumanna og barna. 

  • Tryggjum að börnin séu sýnileg í umferð­inni, til dæmis með endur­skins­merkjum og ljósum á hjólum eða hlaupa­hjól­um. 

  • Ræðum við börnin um örugga hegðun í umferð­inni og förum reglu­lega yfir skóla­leiðina með þeim. 

Með samstilltu átaki getum við gert skóla­byrj­unina öruggari fyrir öll. 

Fréttasafn
Deila frétt