Fréttasafn

|

01.12.2026

Reyk­skynj­arar geta bjargað manns­lífum

Reyk­skynj­arar eru meðal mikil­væg­ustu eldvarna­tækja á heim­il­inu. Þeir nema reyk og gefa frá sér viðvörun sem getur gert fólki kleift að bregðast við í tæka tíð. Í tilefni af degi reyk­skynj­ar­ans, 1. desem­ber, er gott að gefa sér tíma til að athuga hvort reyk­skynj­arar heim­il­isins séu í lagi.

Gefum okkur tíma í að prófa reykskynjarana

Hvað þarf að hafa í huga?

  • Hafið reyk­skynjara í öllum rýmum heim­il­isins þar sem raftæki eru.

  • Stað­setjið skynj­arana í lofti og fylgið leið­bein­ingum fram­leið­anda.

  • Prófið þá reglu­lega með því að ýta á próf­un­ar­hnapp­inn.

  • Ef 9 volta rafhlaða er í skynjara þarf að skipta um hana árlega.

  • Almennt er líftími reyk­skynj­arans sjálfs 10 ár að þeim tíma liðnum þarf að endur­nýja tækið og þá er gott að hafa í huga að til eru reyk­skynj­arar með 10 ára rafhlöðu.

Reyk­skynjari getur gefið fólki mikil­vægan tíma til að bregðast við ef eldur kviknar. Gefið ykkur nokkrar mínútur í byrjun aðvent­unnar til að prófa reyk­skynj­ar­ana. Það getur skipt sköpum ef eldur kemur upp.

Fréttasafn
Deila frétt