Fréttasafn

|

15.07.2026

Öryggi í fyrsta sæti við vinnu í lokuðu rými

Vinna í lokuðu rými getur verið ein hættu­leg­asta vinna sem unnin er á vinnu­stöðum. Þótt verk­efnið virðist einfalt geta aðstæður breyst á örfáum sekúndum ef ekki hefur verið hugað vel að öryggi þar sem loft­gæði geta verið ófull­nægj­andi vegna súrefn­is­skorts, eiturgufa eða eldfimra gasteg­unda án þess að það sjáist eða finn­ist.  

---english below---

Lokuð rými geta verið tankar, brunnar, síló, lagnir, kjall­arar, þröng tækn­i­rými og önnur svæði þar sem aðgengi er takmarkað og loftræsting ófull­nægj­andi.

Flest alvarleg slys í lokuðum rýmum má rekja til skorts á undir­bún­ingi, áhættumati eða örygg­is­ráð­stöf­unum. Með mark­vissri skipu­lagn­ingu, reglu­legum loft­mæl­ingum, skýrum verk­ferlum og góðri þjálfun má draga veru­lega úr áhættu og tryggja að allir komist heilir heim að loknum vinnu­degi.

Mikil­vægt er að uppfylla eftir­far­andi örygg­is­þætti en megin­reglan á alltaf að vera sú að enginn fari inn í lokað rými nema búið sé að meta áhættu, tryggja örugg vinnu­skil­yrði og undirbúa neyðar- og björg­un­ar­við­brögð.

1.      Fram­kvæma áhættumat áður en vinna hefst.

2.      Mæla loft­gæði og fylgjast með þeim meðan á vinnu stendur.

3.      Tryggja full­nægj­andi loftræst­ingu.

4.      Nota viðeig­andi persónu­hlífar og örygg­is­búnað.

5.      Hafa vinnu­leyfi fyrir vinnu í lokuðu rými.

6.      Hafa örygg­is­vörð utan rýmisins og æfða björg­un­ar­áætlun til staðar.

­­­­­­­­­­­­­­­Nánari upplýs­ingar um kröfur má finna í gild­andi reglum Vinnu­eft­ir­litsins um öryggi við vinnu í lokuðu rými.

---

Safety First When Working in Confined Spaces

Working in a confined space can be one of the most hazar­dous tasks performed in the workplace. Even when a job appears straig­ht­forw­ard, conditions can change within seconds if safety has not been carefully consi­d­ered. Air quality may be compromised by oxygen deficiency, toxic gases or vapours, or flammable atmosph­eres that cannot be seen or smelled.

Confined spaces include tanks, wells, silos, pipel­ines, basements, narrow plant rooms, and other areas with restricted access and inadequate ventilation.

Most serious accidents in confined spaces can be traced back to insu­fficient plann­ing, inadequate risk assess­ment, or a lack of appropriate safety measures. Thorough plann­ing, regular atmospheric monitor­ing, clear work procedures, and proper training can significantly reduce the risks and help ensure that everyone returns home safely at the end of the working day.

The following safety measures are essential. The funda­mental principle should always be that no one enters a confined space until the risks have been assessed, safe working conditions have been esta­blis­hed, and emer­gency and rescue procedures are in place.

  1. Carry out a risk assess­ment before work begins.

  2. Test the atmosphere before entry and cont­inu­ously monitor air quality throug­hout the work.

  3. Ensure adequate ventilation.

  4. Use appropriate personal protective equip­ment (PPE) and safety equip­ment.

  5. Obtain a confined space entry permit before entering the space.

  6. Ensure a trained standby attendant remains outside the confined space and that a tested emer­gency rescue plan is in place.

Further information on the applicable requirements can be found in the current regulations issued by the Icelandic Admin­istration of Occupati­onal Safety and Health regar­ding safe work in confined spaces.

Fréttasafn
Deila frétt