Fréttasafn

|

17.04.2026

Öryggi bifhjóla er sameig­inleg ábyrgð

Sumarið er tími bifhjóla. Ökumenn og farþegar bifhjóla teljast óvarðir vegfar­endur og eru mun berskjald­aðri en þeir sem ferðast í bílum.

Mottó margra hjólara er að gera alltaf ráð fyrir því að ökumenn séu ekki búnir að sjá þá.

Öryggi þeirra er því ekki aðeins á þeirra eigin ábyrgð heldur allra vegfar­enda. 

Ökumenn bifhjóla 

  • Gera alltaf ráð fyrir að aðrir sjái þig ekki. 

  • Farð­u yfir hjólið fyrir sumarið m.a. loft­þrýsting dekkja. 

  • Nota alltaf hjálm og viðeig­andi hlífð­ar­fatn­að. 

  • Notaðu upplásið örygg­is­vesti þau hafa margsannað gildi sitt og við­skipta­vinir VÍS eru með 20% afslátt af Helite-vest­unum hjá Akst­ur­svernd

  • Tryggðu góðan sýni­leika með skærum lit, ljósum og endur­skini. 

  • Virtu hámarks­hraða og fylgstu með ástandi vega. 

  • Í bleytu skal forðast vegmerk­ingar og lausa­möl.  

  • Forð­astu snöggar hreyf­ingar og haltu öruggri fjar­lægð frá öðrum ökutækjum.  

  • Gerðu ráð fyrir mistökum annarra og forð­astu blind­svæði.  

Ökumenn bifreiða 

  • Athuga spegla og blind­svæði vand­lega áður en þú skiptir er um akrein eða beygir 

  • Gefa þér sértak­lega við vinstri beygjur.  

  • Haltu öruggri fjar­lægð frá bifhjól­um. 

  • Gott er að venja sig á að líta tvisvar áður en þú breytir um stefnu.  

Sameig­inleg ábyrgð 

Öryggi í umferð­inni byggir á samvinnu. Með aukinni vitund og gagn­kvæmri virð­ingu má draga úr slysum og gera vegina öruggari fyrir alla. 

Fréttasafn
Deila frétt