Fréttasafn

|

03.07.2026

Öruggur akstur hefst hjá hverjum ökumanni 

Sumarið er anna­sam­asti tími ársins á þjóð­vegum landsins og þá skiptir meira máli en nokkru sinni að ökumenn sýni aðgát, tillits­semi og þolin­mæði.

Með einföldum atriðum getum við öll stuðlað að öruggari umferð og komið heil heim.

Þolin­mæði skiptir máli
Á ferða­manna­tíma getur umferð verið þung og tafir myndast á vinsælum leiðum. Með þolin­mæði og yfir­vegun má draga úr streitu og minnka líkur á mistökum. Það borgar sig aldrei að taka óþarfa áhættu til að spara örfáar mínútur.

Athyglin á veginum
Óskipt athygli ökumanns er ein mikil­væg­asta forsenda öruggs akst­urs. Forðist notkun farsíma og aðra truflun meðan ekið er. Ef nauð­syn­legt er að sinna símtali, stilla leið­sögu­tæki eða leita að einhverju í bílnum er best að stöðva ökutækið á öruggum stað áður.

Virðum hámarks­hraða
Hámarks­hraði er ákveðinn með öryggi vegfar­enda að leið­ar­ljósi. Með því að aka innan leyfi­legs hámarks­hraða eykst svigrúm til að bregðast við hættum. Mundu að aðstæður geta líka kallað á enn lægri hraða en umferð­ar­merki segja til um.

Haltu öruggu bili
Mikil­vægt er að halda nægi­legu bili á milli ökutækja. Gott viðmið er að hafa að minnsta kosti þriggja sekúndna bil við eðli­legar aðstæður og lengra bil þegar veður eða vegir eru erfiðir. Nægi­legt bil gefur ökumanni tíma til að bregðast við ef eitt­hvað óvænt gerist.

Framúrakstur aðeins þegar það er öruggt
Mikil­vægt er að vanda stað­setn­ingu framúraksturs vel. Aka skal framúr aðeins þar sem sýn er góð, vegmerk­ingar leyfa það og nægt svigrúm er til staðar. Ef minnsti vafi leikur á öryggi framúraksturs er rétt ákvörðun að bíða eftir betra tæki­færi.

Varúð á malar­vegum
Akstur á malar­vegum krefst sérstakrar aðgæslu. Veggrip er minna en á bundnu slit­lagi og lausamöl getur lengt heml­un­ar­vega­lengd og aukið hættu á að ökutæki missi stöð­ug­leika. Dragðu úr hraða og vertu sérstak­lega á varð­bergi þegar öðru ökutæki er mætt m.a. upp á grjót­kast.

Fréttasafn
Deila frétt