Fréttasafn
|02.07.2026
Öruggt og gott vinnuumhverfi
Margir verja stórum hluta dagsins á vinnustað sínum. Öruggt og heilnæmt umhverfi, innan- og utandyra, skiptir því miklu máli fyrir heilsu og vellíðan þeirra sem þar eru.

---english below---
Öllu máli skiptir að búa þannig um hnútana að ekki þurfi að læra af alvarlegum atvikum, heldur koma í veg fyrir þau, sem er tilgangur forvarna.
Innandyra
Innan vinnustaðar má draga verulega úr slysa- og heilsuáhættu m.a. með áherslu á:
Vel hannaða og snyrtilega vinnuaðstöðu, góða lýsingu og loftgæði.
Rétt stillt borð, stóla og skjái ásamt réttri líkamsbeitingu.
Reglulegt viðhald tækja, öryggi véla og skýrar verklýsingar.
Eldvarnir, rýmingaráætlanir og æfingar.
Utandyra
Þekkt er að lítil atvik utandyra geta haft alvarlegar afleiðingar eins og fall, högg, klemmuslys og árekstra. Það skiptir því miklu að horfa á öryggi þar líkt og innandyra:
Snyrtilegt og vel skipulagt umhverfi.
Góðar merkingar, lýsing og afmörkun vinnusvæða.
Rétta notkun persónuhlífa.
Virkt áhættumat.
Forvarnir sem hluti af rekstrarhugsun
Forvarnir er að skoða aðstæður fyrir fram og „stytta sér ekki leið“ þegar kemur að örygginu. Öruggt vinnuumhverfi er ekki kostnaður heldur fjárfesting og þau fyrirtæki sem setja öryggi og heilsu í forgang geta átt von á:
Færri slysa- og veikindadögum.
Meiri starfsánægju og tryggara starfsfólk.
Sterkari ímynd og auknu trausti viðskiptavina og samfélagsins.
Lækkun kostnaðar til lengri tíma litið.
---
Safe and Healthy Working Environment
Many people spend a large part of their day at work. A safe and healthy working environment, both indoors and outdoors, is therefore essential for the health and well-being of everyone in the workplace. The key is to put the right preventive measures in place so that serious incidents can be avoided rather than learned from after they occur. This is the purpose of prevention.
Indoors
The risk of accidents and work-related health issues can be significantly reduced by focusing on:
Well-designed, tidy workspaces with good lighting and indoor air quality.
Properly adjusted desks, chairs, and computer screens, combined with correct ergonomic practices.
Regular maintenance of equipment, machine safety, and clear operating procedures.
Fire prevention measures, evacuation plans, and regular emergency drills.
Outdoors
Even seemingly minor incidents outdoors can have serious consequences, including slips, trips and falls, impacts, crush injuries, and vehicle collisions. Outdoor safety should therefore receive the same attention as indoor safety by ensuring:
A clean, well-organized working environment.
Clear signage, adequate lighting, and well-defined work areas.
Correct use of personal protective equipment (PPE).
Ongoing and effective risk assessments.
Prevention as Part of Business Operations
Prevention means identifying and addressing risks before incidents occur and never taking shortcuts when it comes to safety. A safe working environment is not a cost—it is an investment. Organizations that prioritize health and safety can expect:
Fewer workplace accidents and reduced sickness absence.
Higher employee satisfaction and improved staff retention.
A stronger reputation and increased trust among customers and the wider community.
Lower costs in the long term.