Fréttasafn

|

25.11.2026

Örugg jól byrja á góðum eldvörnum

Jólin eru tími ljósa, kerta, jóla­skreyt­inga og elda­mennsku. Á þessum árstíma er notkun rafmagns­tækja oft meiri en venju­lega og hættan á bruna getur aukist. Í amstri jólaund­ir­bún­ingsins er auðvelt að gleyma logandi kerti, skilja elda­vélina eftir í gangi eða nota jóla­ljós sem ekki eru í góðu ástandi. Með einföldum varúð­ar­ráð­stöf­unum má draga veru­lega úr eldhættu og stuðla að öruggri hátíð.

Setjum eldvarnir í fyrsta sæti

---english below---

Förum yfir eldvarna­bún­aðinn

  • Höfum virka reyk­skynjara í öllum rýmum þar sem rafmagns­tæki eru og prófum þá reglu­lega. Skiptum árlega um 9 volta rafhlöðu ef hún er í skynj­ar­anum og munum að líftími skynj­arans sjálfs er 10 ár.

  • Höfum eldvarna­teppi á sýni­legum stað í eldhús­inu, en ekki svo nærri elda­vél­inni að erfitt sé að ná til þess ef kviknar í þar.

  • Höfum yfir­farið slökkvi­tæki  á aðgengi­legum stað við flótta­leið og tryggjum að heim­il­is­fólk kunni að nota það.

Kerti og jóla­skreyt­ingar

  • Munum að LED-kerti eru mun öruggari en logandi kerti.

  • Skiljum ekki logandi kerti eftir án eftir­lits og munum sérstak­lega eftir þeim áður en farið er að sofa eða heim­ilið yfir­gefið.

  • Höfum kerti fjarri gard­ínum, skreyt­ingum og öðru eldfimu efni.

  • Notum stöðuga kerta­stjaka og gætum þess að börn og gæludýr komist ekki að kert­unum.

  • Förum varlega með aðventukr­ansa. Greinar og aðrar nátt­úr­legar skreyt­ingar í þeim geta þornað og orðið eldfim­ari.

Elda­mennska í jóla­önnum

  • Skiljum ekki eftir pott eða pönnu á heitri hellu án eftir­lits.

  • Gætum sérstak­lega að okkur þegar við steikjum eða djúp­steikjum í olíu.

  • Höfum eldfima hluti, svo sem eldhúspappír, fjarri elda­vél­inni.

  • Ef kviknar í olíu eða feiti á pönnu má  aldrei nota vatn til að slökkva eldinn. Ef það er óhætt, kæfum eldinn með loki eða eldvarna­teppi og slökkvum á hell­unni.

Jóla­ljós og rafmagn

  • Yfir­förum jóla­ljós og rafmagns­snúrur fyrir notkun. Notum ekki ljós með skemmdum snúrum eða tengjum.

  • Notum aðeins ljós utan­dyra sem merkt eru sem slík.

  • Forð­umst að tengja mörg fjöltengi saman eða ofhlaða þau.

  • Slökkvum á jóla­ljósum áður en við förum að sofa eða yfir­gefum heim­ilið.

  • Hlöðum rafhlöður og raftæki á hörðu undir­lagi og skiljum þau ekki eftir í hleðslu þegar enginn er heima eða allir eru sofandi.

Öryggið fyrst

Ef kviknar í skiptir öllu að bregðast hratt og rétt við. Tryggjum öryggi fólks, yfir­gefum húsnæðið ef eldurinn er ekki strax viðráð­an­legur og hringjum í 112. Tökum aldrei óþarfa áhættu við slökkvistarf og lokum hurðum á leið­inni út, sérstak­lega hurð­inni að rýminu þar sem eldurinn er, ef það er óhætt.

Með góðum undir­bún­ingi og einföldum eldvarna­venjum getum við dregið úr líkum á bruna og átt örugg og gleðileg jól.

 ---

A Safe Christmas Starts with Good Fire Safety Practices

Christmas is a time for lights, cand­les, decorations and cook­ing. During this time of year, the use of electrical appli­ances is often higher than usual, which can increase the risk of fire. Amid the busy Christmas preparati­ons, it is easy to forget a burning candle, leave the stove unatt­ended or use Christmas lights that are not in good condition. By taking a few simple precauti­ons, we can significantly reduce the risk of fire and help ensure a safe and happy holiday season.

Check Your Fire Safety Equip­ment

  • Make sure you have working smoke alarms in all rooms where electrical appli­ances are used and test them regul­arly. Replace 9-volt batteries annually, where applica­ble, and remember that smoke alarms have a lifespan of 10 years.

  • Keep a fire blanket in a visible and easily accessible place in the kitchen, but not so close to the stove that it would be difficult to reach if a fire breaks out.

  • Make sure your fire extinguisher has been inspected and is kept in an accessible location near an escape route. Ensure that everyone in the household knows how to use it.

Candles and Christmas Decorations

  • Remember that LED candles are much safer than traditi­onal burning cand­les.

  • Never leave burning candles unatt­ended. Always remember to extinguish them before going to bed or leaving the home.

  • Keep candles away from curtains, decorations and other flammable mater­ials.

  • Use stable candle holders and make sure children and pets cannot reach the cand­les.

  • Take extra care with Advent wreaths. Branches and other natural decorations can dry out over time and become more flamma­ble.

Christmas Cooking

  • Never leave pots or pans unatt­ended on a hot stove.

  • Take extra care when frying or deep-frying in oil.

  • Keep flammable items, such as kitchen paper towels, away from the stove.

  • If oil or grease catches fire in a pan, never use water to extinguish the flames. If it is safe to do so, smother the fire with a lid or fire blanket and turn off the heat.

Christmas Lights and Electrical Safety

  • Check Christmas lights and electrical cords before use. Never use lights with damaged cables or plugs.

  • Only use outdoor lights that are specifically designed and labelled for outdoor use.

  • Avoid conn­ecting multiple power strips together or over­loa­ding them.

  • Turn off Christmas lights before going to bed or leaving the home.

  • Charge batteries and electrical devices on a hard, non-flammable surface. Never leave devices charging when no one is home or while everyone is asleep.

Safety First

If a fire breaks out, it is essential to act quickly and correctly. Prio­ritise peop­le's safety, evacuate the building if the fire cannot be brought under control immedia­tely, and call 112. Never take unnecessary risks when attempting to extinguish a fire. Close doors as you leave, particul­arly the door to the room where the fire is loca­ted, if it is safe to do so.

With good preparation and simple fire safety habits, we can reduce the risk of fire and enjoy a safe and happy Christ­mas.

Fréttasafn
Deila frétt