Fréttasafn

|

21.05.2026

Örugg hleðsla rafhlaupa­hjóla

Rafhlaupa­hjól hafa á skömmum tíma orðið algengur samgöngu­máti enda bæði þægileg og umhverf­i­s­væn. Mikil­vægt er þó að hafa í huga að hætta getur skapast við hleðslu rafhlaðna þeirra. Slík atvik má oft rekja til gall­aðra eða skemmdra rafhlaðna, rangs eða bilaðs hleðslu­bún­aðar eða óvandaðs búnaðar.

---english below---

Við hvetjum þig því til að hafa eftir­far­andi í huga til að fyrir­byggja bruna og bregðast rétt við ef eitt­hvað kemur upp á:

  • Hafa reyk­skynjara í rýminu þar sem hjólið er hlaðið.

  • Hlaða ekki hjólið nema einhver sé heima og vakandi.

  • Hlaða hjólið í hjóla­geymslu eða bílskúr ef kostur er.

  • Ekki hlaða hjólið í eða við flótta­leið.

  • Ekki hlaða hjól sem hefur orðið fyrir höggi á rafhlöðu nema fagaðili hafi skoðað það og stað­fest að það sé í lagi.

  • Nota rétt og vottað hleðslu­tæki sem er óskemmt.

  • Gæta þess að hleðslu­tækið standi á hörðu undir­lagi.

  • Hafa eldfim efni ekki nærri hjóli í hleðslu.

  • Taka hjólið úr hleðslu þegar rafhlaðan er full­hlaðin.

  • Taka varúð­ar­merki alvar­lega, svo sem lykt, óvenju­legan hita, bólgna rafhlöðu eða óvenjuleg hljóð við hleðslu.

  • Ef eldur kviknar er öruggast að yfir­gefa rýmið, loka hurð ef mögu­legt er og hringja í 112.

---

Safe charging of electric scooters

Electric scooters have in a short time become a common means of tran­sport, being both convenient and environmentally friendly. It is import­ant, however, to keep in mind that charging their batteries can involve a risk. Such incidents can often be traced to faulty or damaged batteries, incor­rect or defective char­gers, or poor‑quality equip­ment. We therefore encourage you to keep the following in mind to prevent fires and respond correctly if somet­hing goes wrong:

  • Install smoke detectors in the area where the scooter is char­ged.

  • Do not charge the scooter unless someone is at home and awake.

  • If possi­ble, charge the scooter in a bike storage room or garage.

  • Do not charge the scooter in or next to an escape route.

  • Do not charge a scooter whose battery has been subj­ected to impact unless a professi­onal has inspected it and confirmed that it is safe.

  • Use the correct, certified charger that is unda­ma­ged.

  • Make sure the charger is placed on a hard, firm surface.

  • Keep flammable mater­ials away from the scooter while it is charg­ing.

  • Unplug the scooter once the battery is fully char­ged.

  • Take warning signs seri­ously, such as unusual smells, abnormal heat, a swollen battery, or unusual sounds during charg­ing.

Fréttasafn
Deila frétt