Fréttasafn

|

21.08.2026

Opnað fyrir umsóknir til Forvarna­verð­launa VÍS 2027

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Forvarna­verð­laun VÍS 2027. Verð­launin verða afhent á Forvarna­ráð­stefnu VÍS í Hörpu fimmtu­daginn 11. mars 2027.

Forvarna­verð­laun VÍS hafa verið veitt frá árinu 2010 og eru þau ætluð fyrir­tækjum sem skara fram úr í örygg­is­málum og forvörnum og eru öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd. Öll fyrir­tæki geta sótt um, óháð því hvar þau eru tryggð.

Við úthlutun er horft til sterkrar örygg­is­menn­ingar og mark­vissrar vinnu við að efla öryggis­vitund og örygg­is­hegðun innan fyrir­tæk­is­ins. Ekki er horft til einstakra verk­efna eða átaks­verk­efna heldur fyrst og fremst til þess hvernig öryggis- og forvarn­astarf er samofið daglegri starf­semi og innra starfi fyrir­tæk­is­ins.

Verð­launað verður í tveimur flokkum: fyrir­tæki með færri en 100 starfs­menn og fyrir­tæki með 100 starfs­menn eða fleiri.

Umsóknir með eftir­far­andi upplýs­ingum sendist á forvarn­ir@vis.is fyrir 30. október 2026.

Upplýs­ingar sem þurfa að koma fram í umsókn­inni eru:

  • Nafn fyrir­tækis

  • Kennitala fyrir­tækis

  • Atvinnu­grein

  • Fjöldi starfs­stöðva

  • Fjöldi starfs­manna

  • Nafn, netfang og síma­númer tengi­liðs

Fréttasafn
Deila frétt