Fréttasafn
|06.11.2026
Málþing Eldvarnabandalagsins
Föstudaginn 13. nóvember heldur Eldvarnabandalagið árlegt málþing sitt. Að þessu sinni verður sjónum beint að eldvörnum í sjávarútvegi.

Málþing Eldvarnabandalagsins 13. nóvember kl. 13:00 í Norrænahúsinu og í streymi.
Eldvarnir um borð í skipum á málþingi Eldvarnabandalagsins
Á hverju ári verða brunar í skipum og bátum við Íslandsstrendur. Eldvarnir eru því eitt af mikilvægustu öryggismálum sjómanna, enda getur eldur um borð skapað afar hættulegar aðstæður þar sem möguleikar á að komast í öruggt skjól eru takmarkaðir.
Á málþingi Eldvarnabandalagsins verður fjallað um umfang brunatjóna á sjó og leiðir til að efla eldvarnir og viðbúnað. Meðal umfjöllunarefna verða eldvarnir í smábátum og smábátahöfnum, rýming og viðbragð við eldsvoða í skipum, bruninn í fiskiskipinu Barða NK-120, áskoranir sem fylgja rafvæðingu skipaflotans og nýsköpun í öryggismálum með stafrænum lausnum.
Skráning á málþingið fer fram á eldvarnabandalagid.is.

Um Eldvarnabandalagið
Eldvarnabandalagið var stofnað árið 2010 og er samstarfsvettvangur um auknar brunavarnir hjá fyrirtækjum og heimilum um allt land. VÍS hefur verið aðili að bandalaginu frá upphafi.