Fréttasafn

|

12.03.2026

Loftorka Reykjavík og Corip­harma hlutu Forvarna­verð­laun VÍS árið 2026

Forvarna­ráð­stefna VÍS var haldin í 16. sinn í Hörpu og var yfir­skrift ráðstefn­unnar í ár Öryggi á okkar vegum og þemað umferðarör­yggi í víðu samhengi.

Á ráðstefn­unni voru Forvarna­verð­laun VÍS veitt þeim fyrir­tækjum sem hafa skarað fram úr með mark­vissu forvarn­a­starfi og sýnt með skýrum hætti fram á árangur í forvörnum.

Í ár hlaut Loftorka Reykjavík verð­launin í flokki fyrir­tækja með færri en 100 starfs­menn, en Corip­harma í flokki fyrir­tækja með fleiri en 100 starfs­menn.

Fyrir­tæki sem hlutu hvatn­ing­ar­verð­laun voru: Bus4u, Ölgerðin, Höldur og Norður­orka.

Við óskum þessum fyrir­tækjum inni­lega til hamingju með árang­ur­inn.

Fréttasafn
Deila frétt