Fréttasafn

|

20.01.2026

Lífið eftir makam­issi

Rafræna námskeiðið Lífið eftir makam­issir er öflugt bjargráð sem gott er að leita til í sorg.

Í mikilli vanlíðan segir Anna, sem er annar höfundur námskeiðs­ins, að fólk taki ekki endi­lega mikið frum­kvæði. Þess vegna er mikil­vægt að vinir, ættingjar og vinnu­staðir bendi fólki á úrræði sem til eru eins og námskeiðið Lífið eftir makam­issi. Margir eru í vanlíðan í langan tíma, reyna að láta eins og hún sé ekki þarna þegar þeir hitta aðra en finna svo sterkt fyrir henni í einrúmi. Fólk vill bara bíða vanlíð­anina af sér, vona að hún lagist bara, hverfi af sjálfu sér.

Missir maka er einn erfið­asti atburður sem fólk upplifir á lífs­leið­inni. Það að missa ástvin og maka er mikið áfall sem hefur áhrif á daglegt líf, fram­tíð­arsýn og sjálfs­mynd fólks. Margir finna fyrir óöryggi og einmana­leika og eiga erfitt með að sjá lífið fyrir sér þegar aðstæður eru svo breyttar.

Rafræna námskeiðið Lífið eftir makam­issi veitir einstak­lingum í þeim sporum stuðning og fræðslu sem hjálpar til við úrvinnslu sorgar og að ná sálrænni endur­heimt. Við hjá VÍS erum stolt af því að hafa styrkt gerð námskeiðsins og bjóðum viðskipta­vinum okkar afslátt af námskeiðinu í gegnum VÍS appið.

Höfundar námskeiðsins þær Guðfinna Eydal, sálfræð­ingur og Anna Ingólfs­dóttir, rithöf­undur og jóga­kennari hafa báðar misst maka en Anna var 35 ára með þrjú lítil börn og Guðfinna var rúmlega sextug. Áður skrifuðu þær bókina Makam­issir.

Námskeið sem hægt er að heim­sækja aftur og aftur

Námskeiðið Lífið eftir makam­issi er nýtt úrræði hugsað fyrir þá sem eru að leita eftir stuðn­ingi og fræðslu eftir makam­issi. Það sé eingöngu rafrænt og hægt að tengjast því í gegnum síma eða tölvu. Það tekur um 4,5 klst og inni­haldi fræðslu, hugleiðslur, bjargráð, öndun­aræf­ingar og slökun. Fólk greiðir fyrir aðgang sem gildir í eitt ár og getur farið eins oft í gegnum efnið og hentar, í öruggu rými, heima í stofu, grátið eins og það vill í friði. Námskeiðið er gagn­virkt á þann hátt að innifalið í gjaldinu er eitt stuðn­ings­viðtal sem fer fram í gegnum Zoom eða Teams og hægt er að fá fleiri viðtöl ef óskað er eftir því.

Af hverju þetta námskeið?

,,Almennt tölum við ekki mikið um dauð­ann. Dauðinn er ekki umræðu­efni nema þegar hann birt­ist. Allt í einu er mann­eskja sem ætlaði að vera að gera skemmti­lega hluti með maka sínum orðin ein og öll lífsins plön breytt. Makinn kemur ekki til baka, hversu heitt sem þess er óskað og bjargráð vegna fyrri áfalla duga kannski ekki núna, “ segir Anna.

Í staðinn fyrir að syrgj­andi þurfi að uppgötva allt í kringum sorg og afleið­ingar hennar, á löngum tíma, bjóðum við á þessu námskeiði, stuðning í formi fræðslu, þekk­ingar og skiln­ings á því hvað í raun gerist í mann­eskju þegar hún missir maka sinn og við upplýsum um hvað í sorg­inni felst. Þannig má segja að námskeiðið geti opnað mörgum veröld sem þau þekktu ekki áður. Sorg og þjáning henni tengd er sammann­leg. Í sorg kemst fólk í meiri nánd við sjálft sig. Sorg neyðir mann­eskjuna til þess að horfa inn á við.

Hvernig hjálpar námskeiðið?

Anna segir efni námskeiðsins geti skýrt línur, útskýrt og fært fólki skilning á eigin líðan og viðbrögðum. Fari fólk nokkrum sinnum í gegnum efnið, noti hugleiðsl­urnar og velti fyrir sér bjargráðum sem í verk­efn­unum liggja og eru í lok námskeiðs, ætti fólk að finna á þessu tólf mánaða tíma­bili hvernig skiln­ingur þess hefur aukist, hvernig það hefur meðtekið fræðslu og aukið við þekk­ingu sína. Auknum skiln­ingi geta fylgt hvati og vilji til að halda áfram, gera breyt­ingar og skoða farinn veg; skoða hver var ég sem mann­eskja áður en ég kynntist maka mínum, hver vorum við sem par og hver er ég nú í þessum nýju aðstæðum. ,,Við makam­issi vakna alls konar hugrenn­ingar tengdar gömlum minn­ingum og áföllum. Það getur verið áhuga­vert að skoða það og í bjargráð­unum er til dæmis verk­efni sem hvetur fólk til þess að fara yfir lífs­fer­ilinn sinn með tilliti til fyrri áfalla og stórra viðburða í lífi sínu. Við leggjum líka áherslu á að halda í vonina, þennan djúpa kraft sem í okkur býr og skiptir svo miklu máli.“

,,Auð­vitað hefur tíminn mild­andi áhrif á vanlíðan í sorg en það að leita leiða og lausna, afla sér fræðslu og þekk­ingar, takast á við úrvinnslu sorgar, mark­visst og með stuðn­ingi gefur óneit­an­lega von um að fólk festist ekki í viðvar­andi sorg, heldur nái að tengjast sjálfu sér á dýpri hátt um leið og það öðlast sálræna endur­heimt, “ segir Anna að lokum.

Við hjá VÍS hvetjum einstak­linga í þessum sporum til að kynna sér þau bjargráð sem námskeiðið Lífið eftir makam­issi getur gefið.

Fréttasafn
Deila frétt