Fréttasafn

|

11.09.2026

Leitað að fyrir­myndum í örygg­is­málum fyrir­tækja

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Forvarna­verð­laun VÍS 2027. Verð­launin eru veitt fyrir­tækjum sem hafa náð góðum árangri í forvarna- og örygg­is­starfi og byggt upp sterka örygg­is­menn­ingu. Umsókn­ar­frestur er til 30. október 2026.

Guðný Helga Herbertsdóttir forstjóri VÍS

Forvarna­verð­laun VÍS verða afhent á Forvarna­ráð­stefnu VÍS í Hörpu 11. mars 2027. Öll fyrir­tæki geta sótt um, óháð því hvar þau eru tryggð.

Verð­launin hafa verið veitt frá árinu 2010 og beina sjónum sínum að heild­stæðu og mark­vissu  forvarn­a­starfi fyrir­tækja. Horft er meðal annars til örygg­is,  vinnu­verndar og vellíðan starfs­fólks til lengri tíma. Ekki er leitað eftir einu vel heppnuðu átaki heldur fyrir­tækjum þar sem forvarnir eru samofnar daglegum rekstri og menn­ingu vinnu­stað­ar­ins.

„Öflug örygg­is­menning verður ekki til með einu átaki. Hún byggist upp með skýrri ábyrgð, stöð­ugri eftir­fylgni og raun­veru­legri þátt­töku starfs­fólks,“ segir Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS. „For­varnir snúast ekki aðeins um að koma í veg fyrir slys heldur um að skapa  vinnu­um­hverfi þar sem fólki líður vel og allir komast heilir heim að loknum vinnu­degi.”

Guðný Helga  segir ánægju­legt að sjá aukinn metnað fyrir­tækja í öryggis- og  forvarna­málum.

„Fyr­ir­tækin sem ná bestum árangri líta á öryggi sem sameig­in­legt verk­efni allra. Þar tekur starfs­fólk þátt, ábend­ingum er fylgt eftir og reynslan nýtt til umbóta. Slík menning skilar sér alltaf í öruggara vinnu­um­hverfi.”

Verð­launin verða veitt í tveimur flokkum:

  • Fyrir­tæki með færri en 100 starfs­menn

  • Fyrir­tæki með 100 starfs­menn eða fleiri

Umsókn­ar­ferlið gefur fyrir­tækjum jafn­framt tæki­færi til að leggja mat á eigið forvarn­astarf, draga fram styrk­leika og greina hvar frekari umbóta er þörf.

„Við viljum vekja athygli á fyrir­tækjum sem geta verið öðrum fyrir­mynd og  um leið sýna fram á hverju er hægt að áorka með mark­vissu forvarn­a­starfi. Reynslan sýnir að þátt­takan sjálf er verð­mæt. Hún hjálpar fyrir­tækjum  að fá betri yfirsýn yfir stöðuna og móta næstu skref í örygg­is­starf­inu,” segir Guðný Helga.

Fyrir­tæki sem hljóta Forvarna­verð­laun VÍS geta notað merki verð­laun­anna í eigin miðlun. VÍS hvetur fyrir­tæki af öllum stærðum og úr öllum atvinnu­greinum til að sækja um. Meðal fyrir­tækja sem hafa fengið verð­launin síðustu ár eru Corip­harma, Loftorka Reykja­vík, Alcoa Fjarðarál, Sæplast, Skinney Þinga­nes, Rafeyri og Alvotech.

Umsókn­ar­frestur er til 30. október

Umsóknir skulu berast á netfangið forvarn­ir@vis.is með upplýs­ingum um:

  • nafn fyrir­tækis og kennitala

  • atvinnu­grein

  • fjöldi starfs­stöðva og starfs­manna

  • upplýs­ingar um tengilið

Forvarna­verð­laun VÍS 2027 verða afhent á Forvarna­ráð­stefnu VÍS í Hörpu 11. mars 2027.

Fréttasafn
Deila frétt