Fréttasafn

|

18.01.2026

Látum ljós okkar skína

Endur­skin og ljós á fatnaði og búnaði eykur öryggi gang­andi og hjólandi vegfar­enda í myrkri. Rann­sóknir sýna að ökumenn geta séð einstak­ling með endur­skini allt að fimm sinnum fyrr en þann sem ekki ber það.

Fatn­aður með innbyggðu endur­skini er frábært val. Ef svo er ekki er mikil­vægt að hengja eða líma endur­skin á og þá bæði á yfir­hafnir og töskur. Best er að passa upp á að endur­skinið sjáist bæði að framan. Á úlpu er gott að setja hang­andi endur­skin neðst til hliðar beggja vegna og límt endur­skin fyrir miðju bæði að framan og aftan.

Með einföldum aðgerðum, eins og að nota endur­skin, geta vegfar­endur aukið sýni­leika sinn og þar með öryggi sitt. Allir ættu að finna eitt­hvað við sitt hæfi þar sem úrvalið er mikið og fæst víða meðal annars á skrif­stofum VÍS og í VÍS appinu.

Fréttasafn
Deila frétt