Fréttasafn
|16.11.2026
Lærum af atvikunum áður en slys verða
Virk skráning atvika er mikilvægur þáttur í markvissu forvarnastarfi fyrirtækja. Upplýsingar um slys, óhöpp, næstum því slys og ábendingar um hættur á vinnustað geta hjálpað til við að bæta starfsumhverfið og auka öryggi starfsfólks.

Upplýsingar um slys, óhöpp, næstum því slys og ábendingar um hættur á vinnustað geta hjálpað til við að auka öryggi starfsfólks.
---english below---
Með því að skrá ekki aðeins slys heldur einnig minniháttar atvik og ábendingar um hættur fæst betri yfirsýn yfir það sem betur má fara. Atvik sem virðist lítilvægt í fyrstu getur gefið vísbendingu um hættu sem annars hefði farið fram hjá fyrirtækinu.
Virk skráning eflir öryggismenningu
Það hefur jákvæð áhrif á öryggismenningu þegar starfsfólk finnur að ábendingar þess og upplýsingar um atvik skipta máli. Með virkri skráningu er hægt að:
Fyrirbyggja slys með því að bregðast við hættum áður en þær valda slysum eða tjóni.
Greina áhættu og fá betri yfirsýn yfir hvar og við hvaða aðstæður hættur skapast.
Auka meðvitund starfsfólks um áhættuþætti og hvetja það til virkrar þátttöku í forvörnum.
Bæta verklag með því að nýta upplýsingarnar við endurskoðun verkferla, fræðslu og öryggisráðstafana.
Styrkja öryggismenninguna með því að taka ábendingar starfsfólks alvarlega og bregðast við þeim.
Mikilvægt er að skráningum sé fylgt eftir með viðeigandi viðbrögðum. Markmiðið er ekki að leita að sökudólgi heldur að læra af atvikum og koma í veg fyrir að þau endurtaki sig.
Atvik – einföld leið til að auka öryggi
Fyrirtæki halda utan um atvikaskráningar með mismunandi hætti. Þau sem eru ekki með eigið kerfi geta til dæmis nýtt sér Atvik, einfalt verkfæri til að skrá og halda utan um slys, óhöpp, næstum því slys og ábendingar.
Fyrirtæki sem tryggja hjá VÍS fá að lágmarki 40% afslátt af mánaðargjaldi Atviks. Með því að læra af atvikum dagsins í dag má koma í veg fyrir slys á morgun.
---
Learn from Incidents Before Accidents Happen
Active incident reporting is an important part of a company’s systematic approach to prevention. Information about accidents, incidents, near misses and reported workplace hazards can help improve the working environment and enhance employee safety.
By reporting not only accidents but also minor incidents and potential hazards, companies gain a clearer picture of areas that need improvement. This makes it easier to identify recurring patterns, recognise risk factors and take action before an accident occurs.
An incident that may seem insignificant at first can reveal a potential hazard that might otherwise have gone unnoticed.
Active Reporting Builds a Strong Safety Culture
A positive safety culture develops when employees feel that their observations and incident reports are valued. Active reporting can help companies to:
Prevent accidents by addressing hazards before they result in injury or damage.
Identify risks and gain a better understanding of where and under what circumstances hazards arise.
Raise employee awareness of risk factors and encourage active participation in prevention efforts.
Improve working procedures by using the information gathered to review processes, training and safety measures.
Strengthen the safety culture by taking employees’ concerns seriously and acting on their feedback.
It is important that all reports are followed up with appropriate action. The aim is not to find someone to blame, but to learn from incidents and prevent them from happening again.
Atvik – A Simple Way to Improve Safety
Companies use different methods to manage incident reporting. Those without their own reporting system can, for example, use Atvik, a simple tool for reporting and managing accidents, incidents, near misses and potential hazards.
Companies insured with VÍS receive a discount of at least 40% on Atvik’s monthly subscription fee.
By learning from today’s incidents, we can help prevent tomorrow’s accidents.