Fréttasafn

|

27.10.2026

Hrekkja­vaka og öryggi barna

Þegar börn halda út í hrekkja­vöku­leið­angur er mikil­vægt að huga að öryggi þeirra. Oft er dimmt úti og börn geta verið upptekin af búningum og nammi og því síður vakandi fyrir umferð­inni.

Tryggjum sýnileika barna á Hrekkjavökunni

Með einföldum ráðstöf­unum má auka öryggi þeirra.

  • Tryggið sýni­leika. Notið endur­skins­merki og ljós svo börnin sjáist vel í myrkri.

  • Fylgið yngstu börn­unum. Farið með þeim á milli húsa og tryggið að þau fari ekki ein yfir götur eða gatna­mót.

  • Ræðið leiðina fyrir fram. Farið yfir hvaða götur börnin ætla að heim­sækja og bendið þeim á hættur, svo sem fjöl­farnar götur, blind­horn og staði þar sem skyggni er takmarkað.

  • Kennið örugga hegðun í umferð­inni. Nota gang­brautir þar sem þær eru, líta í báðar áttir áður en farið er yfir götu og fara yfir hana í róleg­heitum. Aldrei hlaupa út á akbraut, jafnvel þótt vinir eða nammi bíði hinum megin.

  • Gætið að búningum og fylgi­hlutum. Grímur mega ekki skyggja á sjónsvið og búningar eiga ekki að vera svo síðir að börnin geti dottið eða átt erfitt með að hreyfa sig.

  • Bílstjórar sýni sérstaka varúð. Ökumenn þurfa að aka varlega í íbúða­hverfum, draga úr hraða og vera sérstak­lega vakandi fyrir börnum sem geta hlaupið skyndi­lega út á götu.

Fréttasafn
Deila frétt