Fréttasafn
|23.09.2026
Góð vetrardekk á bílum fyrirtækis hluti af öryggi starfsmanna
Þegar vetur gengur í garð geta akstursaðstæður breyst hratt. Snjór, ísing og hálka draga úr veggripi og auka hættuna á að ökumaður missi stjórn á bílnum. Góð vetrardekk á bílum fyrirtækisins eru mikilvægur þáttur í öryggi starfsmanna sem ætti ekki að gefa afslátt af.

Með endurskini sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr
---english below---
Á hálum vegi lengist hemlunarvegalengd til muna og hættan t.a.m. á aftanákeyrslum eykst. Tjónatölur VÍS sýna að meðaltali eru um sex aftanákeyrslur tilkynntar á dag yfir árið. Á sumrin eru þær um fjórar á dag en yfir vetrarmánuðina fjölgar þeim í sjö til átta.
Farið yfir ástand dekkjanna
Skoða slit og skemmdir en mynstursdýpt vetrardekkja á að vera að minnsta kosti 3 mm, sama hvar er á slitfleti.
Fylgjast með loftþrýstingi en hann stuðlar að betra veggripi og öruggari akstri.
Hreinsa dekkin með dekkjahreinsi reglulega yfir veturinn.
Fara yfir stöðu dekkja allra ökutækja af og til yfir veturinn.
Hvetjið starfsmenn til öruggs aksturs
Nota alltaf bílbelti.
Leggja símann frá sér og hafa fulla athygli á akstrinum.
Sýna öðrum vegfarendum tillitssemi.
Virða hámarkshraða og draga úr hraða þegar færð versnar.
Gera ráð fyrir lengri hemlunarvegalengd í hálku og snjó.
Vera meðvitaðir um að bíll geti flotið upp í vatnrásum.
---
Good winter tyres on company vehicles are part of employee safety
When winter sets in, driving conditions can change rapidly. Snow, ice and slippery roads reduce traction and increase the risk of drivers losing control of their vehicles. Good winter tyres on company vehicles are an important element of employee safety and should not be compromised.
On slippery roads, braking distances increase significantly, raising the risk of rear-end collisions, for example. VÍS claims data show that, on average, around six rear-end collisions are reported every day throughout the year. During the summer, there are approximately four per day, while during the winter months the number rises to seven or eight.
Check the condition of the tyres
Inspect tyres for wear and damage. Winter tyres should have a tread depth of at least 3 mm across the entire tread surface.
Monitor tyre pressure, as correct pressure contributes to better traction and safer driving.
Clean tyres regularly with tyre cleaner throughout the winter.
Review the condition of the tyres on all vehicles periodically during the winter.
Encourage employees to drive safely
Always wear a seat belt.
Put away mobile phones and give driving your full attention.
Show consideration for other road users.
Observe speed limits and reduce speed when road conditions deteriorate.
Allow for longer braking distances in icy and snowy conditions.
Be aware that vehicles can aquaplane in water-filled ruts.