Fréttasafn
|18.05.2026
Góð fræðsla fyrir nýtt starf mikilvæg
Góð nýliðafræðsla er lykilþáttur í því að skapa öruggan, skilvirkan og heilbrigðan vinnustað. Þegar starfsmaður byrjar í nýju starfi stendur hann frammi fyrir nýju umhverfi, nýjum verkefnum og ókunnum vinnuferlum.

---english below---
Á þeim tíma er meiri hætta á mistökum, sérstaklega ef leiðsögn og fræðsla eru ekki nægjanleg. Markviss nýliðafræðsla þar sem lögð er áhersla á vinnuvernd, slysavarnir, öryggi í umferð um vinnusvæði og rétt vinnubrögð samkvæmt verklýsingum, getur skipt sköpum fyrir öryggi, vellíðan og rekstur fyrirtækisins.
Öryggi frá fyrsta degi
Fyrstu dagar og vikur í starfi hafa mikil áhrif á hvernig nýr starfsmaður upplifir vinnustaðinn. Fái hann skýrar upplýsingar um öryggisreglur, rétt vinnulag og hvernig bregðast eigi við hættum eykst öryggiskennd og sjálfstraust starfsmannsins.
Starfsmaður er einnig líklegri til að gera færri mistök og vinna af öryggi ef hann veit hvert á að leita með spurningar, hvernig á að nota búnað og hvaða reglur gilda.
Slysavarnir
Slys á vinnustöðum verða oft vegna misskilnings, reynsluleysis eða skorts á upplýsingum. Með góðri nýliðafræðslu má draga verulega úr slíkri áhættu.
Mikilvægt er að nýr starfsmaður fái fræðslu um hvernig forðast megi hættulegar aðstæður, hvaða vinnustellingar eru heppilegastar, hvernig beita skuli tækjum á öruggan hátt, hvernig umferð um vinnusvæðið er háttað og hvaða hlífðarbúnað beri að nota til að tryggja eigið öryggi.
Fallslys eru algeng á vinnustöðum og afleiðingar þeirra oft alvarlegar. Því er mikilvægt að fara sérstaklega yfir aðstæður út frá þeirri hættu, tryggja réttan skóbúnað og notkun fallvarnabúnaðar þar sem við á. Eins er mikilvægt að fara yfir skráningu ábendinga, næstum því slysa og slys en úrvinnsla á þeim tilkynningum stuðlar að öruggari vinnustað.
Að koma í veg fyrir mistök
Góð nýliðafræðsla snýst ekki aðeins um slysavarnir heldur líka að koma í veg fyrir mistök í daglegum störfum. Þegar starfsmaður skilur verklag, ábyrgð og væntingar vinnustaðarins verður auðveldara að vinna rétt og skilvirkt frá fyrsta degi. Það sparar tíma, dregur úr kostnaði vegna mistaka og eykur gæði vinnunnar.
Vellíðan og starfsánægja
Öryggi og vellíðan haldast einnig í hendur. Starfsmaður sem fær góðar móttökur, leiðsögn og stuðning finnur frekar fyrir öryggi, finnst hann tilheyra hópnum og upplifir meiri virðingu á vinnustaðnum. Góð nýliðafræðsla getur dregið úr streitu og óöryggi sem oft fylgir því að hefja nýtt starf. Vellíðan starfsfólks hefur síðan jákvæð áhrif á samskipti, starfsanda og starfsánægju.
Ábyrgð vinnustaðarins
Fyrirtæki sem leggja metnað í nýliðafræðslu sýna skýra ábyrgð gagnvart starfsfólki sínu og byggja upp menningu þar sem öryggi, virðing og fagmennska eru í fyrirrúmi. Það styrkir ímynd vinnustaðarins og getur aukið líkur á að starfsfólk vilji vera til lengri tíma. Það má því segja að góð nýliðafræðsla sé fjárfesting í fólki. Hún dregur úr slysum og mistökum, eykur öryggi og stuðlar að vellíðan nýrra starfsmanna.
Með markvissri fræðslu og stuðningi má skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að dafna og vinna störf sín af öryggi og sjálfstrausti.
---
Good Training for a New Job Is Important
Good onboarding training is a key factor in creating a safe, efficient, and healthy workplace. When an employee starts a new job, they are faced with a new environment, new tasks, and unfamiliar work procedures. During this period, the risk of mistakes is greater, especially if guidance and training are insufficient. Structured onboarding that emphasizes occupational health and safety, accident prevention, safe movement within the workplace, and proper working methods according to procedures can make a significant difference to safety, employee well-being, and the company’s operations.
Safety from Day One
The first days and weeks in a new job greatly influence how a new employee experiences the workplace. When employees receive clear information about safety rules, proper work practices, and how to respond to hazards, their sense of security and self-confidence increases.
Employees are also more likely to make fewer mistakes and work safely if they know where to turn with questions, how to use equipment properly, and which rules apply.
Accident Prevention
Workplace accidents often occur because of misunderstandings, lack of experience, or insufficient information. Good onboarding training can significantly reduce such risks.
It is important that new employees receive instruction on how to avoid hazardous situations, which working postures are most appropriate, how to use equipment safely, how movement around the worksite is organized, and which protective equipment should be used to ensure their own safety.
Slip and fall accidents are common in workplaces, and their consequences are often serious. It is therefore important to review situations where this risk exists, ensure proper footwear, and use fall-protection equipment where appropriate. It is also important to review the reporting of suggestions, near misses, and accidents, as the processing of such reports contributes to a safer workplace.
Preventing Mistakes
Good onboarding training is not only about accident prevention but also about preventing mistakes in daily work. When employees understand workplace procedures, responsibilities, and expectations, it becomes easier to work correctly and efficiently from the very first day. This saves time, reduces costs caused by errors, and improves the quality of work.
Well-Being and Job Satisfaction
Safety and well-being also go hand in hand. Employees who receive a good welcome, guidance, and support are more likely to feel secure, feel that they belong to the team, and experience greater respect in the workplace. Good onboarding training can reduce the stress and uncertainty that often accompany starting a new job. Employee well-being then has a positive impact on communication, workplace morale, and job satisfaction.
The Responsibility of the Workplace
Companies that place importance on onboarding training demonstrate clear responsibility toward their employees and help build a culture where safety, respect, and professionalism are prioritized. This strengthens the company’s image and may increase the likelihood that employees will stay long term.
Good onboarding training can therefore be seen as an investment in people. It reduces accidents and mistakes, increases safety, and promotes the well-being of new employees.
Through targeted training and support, it is possible to create a work environment where employees have the opportunity to thrive and perform their jobs safely and with confidence.