Fréttasafn
|15.07.2026
Gerðu utanlandsferðina öruggari
Margir nýta sumarið til að ferðast erlendis. Góður undirbúningur getur komið í veg fyrir óþarfa áhyggjur og gert ferðina bæði öruggari og ánægjulegri. Með því að huga að nokkrum mikilvægum atriðum áður en lagt er af stað og á meðan á ferðinni stendur má draga úr líkum á óvæntum uppákomum.

---english below---
Áður en lagt er af stað
Athugaðu hvort vegabréfið sé gilt út ferðina. Sum lönd gera kröfu um að það sé gilt í nokkra mánuði eftir áætlaðan heimkomudag.
Vertu viss um að ferðatryggingar séu í gildi og athugaðu sérstaklega hvort þær nái yfir áhættusamar ferðir, til dæmis fjallgöngur eða aðrar ævintýraferðir, ef það er fyrirhugað.
Taktu myndir eða rafræn afrit af vegabréfi, ferðagögnum og öðrum mikilvægum skjölum og geymdu á öruggum stað.
Ef ferðast á til Evrópu hafðu Evrópska sjúkratryggingakortið með.
Gakktu úr skugga um að síminn sé fullhlaðinn og hafðu hleðslutæki með í för.
Ef þú tekur lyf reglulega skaltu hafa þau í handfarangri og vera viss um að þau dugi allan ferðatímann.
Hafðu lítið sjúkrasett með plástrum, verkjalyfjum, sólarvörn, after sun og sótthreinsiefni meðferðis.
Þegar á áfangastað er komið
Verndaðu þig fyrir sólinni þar sem hún getur valdið bruna á skömmum tíma. Notaðu sólarvörn með háum varnarstuðli, endurnýjaðu hana reglulega og notaðu hatt og sólgleraugu þegar við á.
Drekktu reglulega yfir daginn, sérstaklega ef þú ert á ströndinni, í gönguferðum eða stundar aðra útivist.
Geymdu vegabréf, greiðslukort og önnur verðmæti á öruggum stað.
Kynntu þér helstu reglur á áfangastaðnum og fylgdu leiðbeiningum sem þar gilda.
Þvoðu hendur reglulega og gættu að matvælaöryggi þar sem við á.
---
Make Your Trip Abroad Safer
Many people take the opportunity to travel abroad during the summer. Good preparation can help prevent unnecessary stress and make your trip both safer and more enjoyable. By taking a few important precautions before you leave and while you're away, you can reduce the risk of unexpected problems.
Before You Travel
Check that your passport is valid for the entire duration of your trip. Some countries require passports to remain valid for several months beyond your planned return date.
Make sure your travel insurance is valid and check whether it covers higher-risk activities, such as hiking, mountain climbing, or other adventure sports, if you plan to take part in them.
If you are travelling within Europe, bring your European Health Insurance Card.
Take photos or make digital copies of your passport, travel documents, and other important paperwork, and store them securely.
Ensure your phone is fully charged before you leave and remember to pack your charger.
If you take medication regularly, keep it in your carry-on luggage and make sure you have enough for the entire trip.
Pack a small first aid kit containing adhesive bandages, pain relief medication, sunscreen, after-sun lotion, and antiseptic.
Once You Arrive at Your Destination
Protect yourself from the sun, as it can cause sunburn in a short amount of time. Use a high-SPF sunscreen, reapply it regularly, and wear a hat and sunglasses when appropriate.
Stay well hydrated throughout the day, especially if you are spending time at the beach, hiking, or taking part in other outdoor activities.
Keep your passport, payment cards, and other valuables in a secure place.
Familiarise yourself with local laws, regulations, and safety guidance, and follow any instructions issued by local authorities.
Wash your hands regularly and practise good food hygiene where appropriate.