Fréttasafn
|22.05.2026
Fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins
Um hvítasunnuhelgina má gera ráð fyrir aukinni umferð um þjóðvegi landsins, auk fjölgunar gesta á útivistar- og tjaldsvæðum. Helgin markar gjarnan upphaf ferðasumarsins.

Ferðalangar eru hvattir til að undirbúa sig vel og sýna aðgát, tillitssemi og ábyrgð á ferðalögum sínum.
Á ferð um vegi landsins
Umferð eykst jafnan verulega síðdegis á föstudegi þegar fólk leggur af stað og aftur á mánudegi þegar haldið er heim á leið. Gott er að hafa eftirfarandi í huga:
Virðið hámarkshraða. Ein mínúta til eða frá skiptir litlu en getur skipt sköpum fyrir öryggi.
Fylgist með veðurspá, sérstaklega hvað varðar vind, úrkomu og skyggni.
Tryggið góða hvíld áður en lagt er af stað til að draga úr hættu á þreytu við akstur.
Gætið þess að allir í ökutækinu noti réttan öryggisbúnað, þar á meðal bílbelti og viðeigandi búnað fyrir börn.
Um fjöll og firnindi
Útivistarsvæði víða um land munu án efa taka á móti fjölda gesta um helgina. Þeir sem fara í gönguferðir, hjóla eða stunda aðra útivist eru hvattir til að:
Undirbúa ferðir sínar vel.
Klæðast viðeigandi fatnaði og traustum skóm.
Velja stikaðar og merktar leiðir þegar þess er kostur.
Veður getur breyst hratt, jafnvel á sumrin, og því er mikilvægt að vera búin til að takast á við óvæntar aðstæður; hafa með sér hlý föt, nægan mat og drykk og hlaðinn síma.
Tjaldsvæði – viðkvæmur gróður og öryggi
Búast má við mikilli aðsókn að tjaldsvæðum um hvítasunnuhelgina. Þá er mikilvægt að:
Hafa í huga að gróður er viðkvæmur á þessum árstíma og forðast að valda skemmdum á viðkvæmum svæðum.
Virða reglur og merkingar á tjaldsvæðum.
Fylgja 4 metra reglunni um bil á milli tjalda, ferðahýsa og húsbíla vegna eldhættu.
Með góðum undirbúningi, varkárni og tillitssemi getum við öll notið hvítasunnuhelgarinnar og fyrstu stóru ferðahelgi sumarsins á öruggan og ánægjulegan hátt.