Fréttasafn

|

26.11.2026

Eldvarnir eru mikil­vægar allt árið

Eldvarnir eru mikil­vægur þáttur í öryggi fyrir­tækja og starfs­fólks, ekki aðeins í desember heldur alla daga ársins. Samkvæmt tölum Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar urðu 293 brunar hjá fyrir­tækjum árið 2025 og námu greiddar tjóna­bætur 2,1 millj­arði króna.

Eldvarnir mikilvægar í öllum fyrirtækjum

---english below---

Tölfræðin sýndi jafn­framt að flest tjónin urðu í janúar og voru íkveikjur og gróð­ureldar þar áber­andi. Það undir­strikar mikil­vægi þess að huga ekki aðeins að eldvörnum innan­dyra heldur einnig utan­dyra. 

Hvað geta fyrir­tæki gert til að draga úr eldhættu?

  • Tryggið að reyk­skynj­arar séu virkir, slökkvi­tæki yfir­farin og eldvarna­teppi aðgengileg þar sem þeirra er þörf.

  • Ef nota á kerti veljið LED-kerti í stað kerta með lifandi loga.

  • Forðast að ofhlaða fjöltengi, takið ónotuð tæki úr sambandi og bregðast við ef rafbún­aður er skemmdur.  

  • Hlaðið rafhlöður á hörðu undir­lagi og þegar einhver er í húsi. 

  • Geymið eldfim efni á öruggan hátt og fjarri hita­gjöfum.

  • Haldið göngum og neyð­ar­út­göngum greið­færum og tryggið óhindrað aðgengi að slökkvi­bún­aði.

  • Látið ekki rusl og brenn­an­legt efni safnast upp við bygg­ingar eða í sorp­geymslum.

  • Gætið sérstakrar varúðar við vinnu sem getur valdið neista­flugi og myndað hita.

  • Tryggið að starfs­fólk þekki viðbragðs­áætlanir, viti hvar slökkvi­bún­aður er og kunni fyrstu viðbrögð við elds­voða.

Eigið eldvarna­eft­irlit

Eigið eldvarna­eft­irlit er mikil­vægur þáttur í mark­vissum eldvörnum fyrir­tækja. Við mælum með að fyrir­tæki fram­kvæmi mánð­ar­legt eldvarna­eft­irlit með þar til gerðum gátlista. Fari þannig skipu­lega yfir búnað, flótta­leiðir, geymslur og aðrar mögu­legar hættur. Skrái niður­stöður og fylgi athuga­semdum eftir þar til úrbætur hafa verið gerðar.

Eldvarnir eru og verða alltaf sameig­in­legt verk­efni stjórn­enda og starfs­fólks og með reglu­legu eftir­liti, fræðslu og skjótum úrbótum má draga úr líkum á bruna og bæta viðbrögð ef hætta skap­ast.

 ---

Fire Safety Is Important All Year Round

Fire safety is an essential part of protecting businesses and empl­oyees, not just in December but every day of the year. According to figures from the Housing and Construction Autho­rity of Iceland, there were 293 fires at business prem­ises in 2025, with insurance claims tota­lling ISK 2.1 bill­ion. The statistics also showed that most of these incidents occurred in Janu­ary, with arson and wild­fires being particul­arly prom­in­ent. This highlights the import­ance of paying attention to fire safety both indoors and outdoors.

What can businesses do to reduce the risk of fire?

  • Ensure that smoke detectors are work­ing, fire extinguis­hers are regul­arly inspected and fire blan­kets are readily accessible where needed.

  • If using cand­les, choose LED candles instead of those with real flames.

  • Avoid over­loa­ding extension leads, unplug appli­ances when not in use and take action if electrical equip­ment is dama­ged.

  • Charge batteries on a hard surface and only when someone is present in the build­ing.

  • Store flammable mater­ials safely and away from sources of heat.

  • Keep corridors and emer­gency exits clear and ensure that fire-fig­hting equip­ment is easily accessi­ble.

  • Do not allow rubbish or combustible mater­ials to accumulate around build­ings or in waste storage areas.

  • Take extra precautions when carrying out work that may generate sparks or heat.

  • Ensure that empl­oyees are familiar with emer­gency procedures, know where fire-fig­hting equip­ment is located and under­stand the initial actions to take in the event of a fire.

In-house Fire Safety Inspections

In-house fire safety inspections are an important part of a systematic approach to fire prevention in the workplace. We recommend that businesses carry out monthly fire safety inspections using a designated checklist. This helps ensure that fire safety equip­ment, escape routes, storage areas and other potential hazards are reviewed systematically. Record the find­ings and follow up on any issues until the necessary corrective measures have been taken.

Fire safety is, and always will be, a shared responsi­bility between mana­gement and empl­oyees. Regular inspecti­ons, training and prompt corrective action can help reduce the risk of fire and ensure a better response should an emer­gency arise.

Fréttasafn
Deila frétt