Fréttasafn
|28.07.2026
Eigum örugga Verslunarmannahelgi
Verslunarmannahelgin er ein umferðarþyngsta helgi ársins og því mikilvægt að gefa sér góðan tíma á milli staða. Aukin umferð kallar á þolinmæði, góða einbeitingu og tillitssemi svo allir komist heilir á áfangastað.

Gerðu ráð fyrir aukinni umferð
Leggðu af stað tímanlega og gerðu ráð fyrir töfum. Framúrakstur getur verið erfiður og varasamur þegar umferð er mikil og akstur yfir hámarkshraða sparar sjaldnast nema örfáar mínútur en eykur slysahættu verulega.
Við mikinn hraða lengist hemlunarvegalengd, styttri tími gefst til að bregðast við og afleiðingar slysa verða alvarlegri. Haltu öruggri fjarlægð frá næsta bíl og mundu að nokkrar mínútur eru aldrei þess virði að stofna eigin eða annarra öryggi í hættu.
Athyglin öll við aksturinn
Símanotkun og akstur eiga ekki saman. Talið er að truflun vegna farsíma sé stór þáttur í mörgum umferðarslysum. Þó handfrjáls búnaður sé leyfilegur er mikilvægt að forðast alla óþarfa notkun á símanum, svo sem að lesa skilaboð, velja tónlist eða skoða skjáinn á meðan ekið er.
Einbeittu þér að akstrinum, fylgstu vel með umhverfinu og notaðu alltaf öryggisbelti, bæði í framsætum og aftursætum.
Þreyta og áfengi geta haft alvarlegar afleiðingar
Ef þreytan sækir að skaltu stoppa og taka pásu eða fá annan til að taka við akstrinum. Það er ekki hægt að taka til baka augnablikið þegar ökumaður sofnar undir stýri.
Sömuleiðis er mikilvægt að hafa í huga að áfengi getur haft áhrif á akstur mun lengur en margir gera sér grein fyrir. Nokkurra klukkustunda svefn er ekki trygging fyrir því að áhrifin séu liðin hjá. Ef minnsti vafi leikur á því hvort þú sért í ástandi til aksturs er skynsamlegast að bíða lengur eða fá annan til að aka.
Markmiðið er einfalt, að allir komist heilir heim eftir ánægjulega og örugga Verslunarmannahelgi.