Fréttasafn
|30.03.2026
Eigum gleðilega og örugga páska
Um páskana má áfram búast við fjölbreyttu veðri. Höfum það í huga og ferðumst af öryggi. Fylgjumst vel með veðurspám og ástandi vega.

Skoðum færð og veður áður en lagt er af stað
Í því árferði sem hefur verið undanfarið hefur verið algengt að sjá bíla utan vegar og jafnvel tjónaða á heiðum. Undirbúum ferðir okkar vel og hreinsum tjöru af dekkjum, ökum miðað við aðstæður og höldum góðri fjarlægð.
Gleymum ekki að skafa vel snjó af öllum rúðum og ljósum og tryggjum að öll ljós séu kveikt þegar skyggni er slæmt.
Þegar langar bílaraðir myndast skilar framúrakstur sjaldnast miklu – nema aukinni hættu.
Óskum ykkur öllum gleðilegra og öruggra páska.