Fréttasafn

|

22.01.2026

Dagskrá og skráning á Forvarna­ráð­stefnu VÍS

Forvarna­ráð­stefna VÍS verður haldin í 16. sinn í Hörpu fimmtu­daginn 12. mars frá kl. 11:30-15:30. Yfir­skrift hennar er Öryggi á okkar vegum þar sem umferðin er í brenni­depli.   

Ráðstefnan er einn stærsti viðburður sinnar tegundar hér á landi. Hún hefur vaxið jafnt og þétt og er öflugur vett­vangur til að styðja við örygg­is­menn­ingu fyrir­tækja. Ráðstefnan er opin öllum en viðskipta­vinum VÍS er boðið á hana.

Öll fyrir­tæki eru þátt­tak­endur í umferð­inni en í mismiklu mæli. Allir hafa skoðun á henni og telja sig ágætis ökumenn. Sitt sýnist svo hverjum en umferðin er gríð­ar­lega stór partur í öryggi okkar allra sama hvort er í vinnu eða frítíma.

Við hvetjum öll til að skoða dagskrá ráðstefn­unnar og skrá ykkur til leiks á síðu ráðstefn­unnar.

Fréttasafn
Deila frétt