Fréttasafn
|23.09.2026
Áhrif verkfalls flugvirkja á ferðatryggingar
Vegna verkfalls flugvirkja viljum við koma eftirfarandi upplýsingum um ferðatryggingar á framfæri. Fyrsta skref er alltaf að kanna rétt sinn hjá flugfélaginu. Hér má finna upplýsingar um réttindi flugfarþega.

Ferðatrygging kreditkorta
VÍS er tryggingafélag ferðatrygginga Íslandsbanka, Sparisjóðanna, Símans Pay og Kardio. Korthafi kann að eiga rétt á bótum úr ferðatryggingu kreditkorts, eftir því um hvaða kort er að ræða og hvaða tjón hefur orðið.
Forföll í ferð
Undir forfallatrygginguna fellur einungis fargjald og gistikostnaður.
Forfallatrygging getur átt við ef röskun á ferð er meiri en 12 klukkustundir og viðskiptavinur ákveður að hætta algjörlega við ferðina af þeim sökum.
Ferðin þarf jafnframt að hafa verið bókuð áður en vitað var, eða mátti vita, að verkfall gæti komið til framkvæmda.
Meta þarf hvert mál sérstaklega með hliðsjón af atvikum og gildandi skilmálum kortsins.
Aðeins eru greiddar bætur vegna forfalla sem verða fram að brottför frá heimili tryggðs.
Flugfargjaldið skal þó fyrst sækja til Icelandair þar sem þeim ber að endurgreiða það.
Ferðatöf
Bætur vegna ferðatafar eru greiddar eftir lengd tafarinnar en ekki í samræmi við þann kostnað sem viðskiptavinur kann að verða fyrir.
Viðskiptavinur ráðstafar bótunum sjálfur, til dæmis til að mæta kostnaði vegna gistingar, fæðis eða annarra útgjalda sem kunna að hljótast af töfinni.
Gildir bæði á útleið og heimleið.
Tafir á leið að flugvelli
Missi tryggður af millilandaflugi vegna þess að fyrra flugi er aflýst kann hann að eiga rétt á bótum samkvæmt kortatryggingunni.
Bætur fást þó ekki greiddar vegna tafa sem rekja má til verkfallsaðgerða sem voru hafnar eða höfðu verið tilkynntar áður en tryggður greiddi fargjaldið.
Ákvæði þetta á einungis við um Business Icelandair, Platinum Icelandair og Premium Icelandair kort frá Íslandsbanka.
Heimilistrygging
Ekki er hægt að sækja bætur vegna röskunar sem rekja má til verkfalls flugvirkja úr ferðatryggingu heimilistryggingar.
Nánari upplýsingar um skilmála ferðatryggingar.