Fréttasafn
|15.09.2026
Aftanákeyrslum fjölgar yfir vetrarmánuðina
Að meðaltali eru um sex aftanákeyrslur tilkynntar til VÍS á hverjum degi yfir árið. Þeim fækkar yfir sumarmánuðina og eru þá að jafnaði um fjórar á dag. Yfir vetrarmánuðina fjölgar þeim hins vegar í sjö til átta á dag.

---english below---
Breyttar akstursaðstæður hafa þar mikil áhrif. Þegar umferð þéttist, skyggni versnar og hálka og snjór gera vart við sig þarf lengri tíma til að bregðast við. Mikilvægasta ráðið til að koma í veg fyrir aftanákeyrslur er að vera á góðum dekkjum, halda góðu bili við ökutækið fyrir framan og lengja bilið enn frekar þegar aðstæður versna.
Höldum athyglinni við aksturinn
Best er að ökumenn láti símann eiga sig meðan þeir aka. Augnabliks athyglisbrestur getur nægt til að ökumaður taki ekki eftir því að bíllinn fyrir framan hægir á sér eða stöðvar. Með því að horfa fram á veginn, aka á hraða sem hæfir aðstæðum og halda góðu bili gefum við okkur dýrmætan tíma til að bregðast við.
Dekkin skipta máli
Góð dekk með nægjanlegri mynsturdýpt og réttum loftþrýstingi skipta máli við allar akstursaðstæður, allt árið um kring. Á veturna eru góð vetrardekk þó sérstaklega mikilvæg. Þau eru öryggisþáttur sem of margir vanmeta. Þegar snjór og hálka gera vart við sig á haustin er því miður algengt að bílar missi grip og tjónum fjölgi verulega.
Rétt stilltur höfuðpúði
Ef eitthvað óvænt gerist skiptir rétt stilltur höfuðpúði miklu máli. Hann getur dregið úr hættu á háls- og bakáverka. Höfuðpúðinn er rétt stilltur þegar efri brún hans er í hæð við hvirfil höfuðsins og bilið milli púðans og höfuðsins er ekki meira en tveir til þrír sentímetrar.
Með einföldum aðgerðum getum við dregið úr líkum á aftanákeyrslum. Höldum góðu bili, verum á góðum dekkjum, sleppum símanum og stillum aksturinn eftir aðstæðum.
---
Rear-end collisions increase during the winter months
On average, around six rear-end collisions are reported to VÍS every day throughout the year. This number falls during the summer months, when there are typically around four per day. During the winter months, however, it rises to seven or eight per day.
Changing driving conditions have a significant impact. When traffic becomes heavier, visibility deteriorates and icy or snowy conditions set in, drivers need more time to react. The most important ways to prevent rear-end collisions are to ensure your vehicle has good tyres, maintain a safe distance from the vehicle ahead and increase that distance further when conditions worsen.
Keep your focus on driving
Drivers should leave their phones alone while driving. A momentary lapse in concentration may be enough to miss that the vehicle ahead is slowing down or stopping. By looking ahead, driving at a speed appropriate for the conditions and maintaining a safe following distance, we give ourselves valuable time to react.
Tyres matter
Good tyres with sufficient tread depth and the correct tyre pressure are important in all driving conditions, throughout the year. In winter, however, good winter tyres are particularly important. They are a safety factor that too many people underestimate. When snow and icy conditions arrive in autumn, it is unfortunately common for vehicles to lose traction and for the number of accidents to increase significantly.
Correctly adjusted head restraint
If something unexpected happens, a correctly adjusted head restraint can make a significant difference. It can reduce the risk of neck and back injuries. The head restraint is correctly adjusted when its upper edge is level with the top of the head and the distance between the restraint and the head is no more than two to three centimetres.
Simple measures can reduce the likelihood of rear-end collisions. Keep a safe distance, make sure your tyres are in good condition, put your phone away and adjust your driving to the conditions.