Horfa á myndband

Forvarna­ráð­stefna VÍS

Harpa 29. febrúar 2024 frá kl. 13-16.

Forvarna­ráð­stefna VÍS er haldin árlega en á ráðstefn­unni er fjallað er um örygg­ismál og forvarnir fyrir­tækja og stofnana frá öllum hliðum. Vel valdir sérfræð­ingar og stjórn­endur á þessu sviði deila reynslu sinni með ráðstefnu­gestum.

Ráðstefnan hefur skapað sér sess sem einn fjöl­sótt­asti viðburður sinnar tegundar á Íslandi.

Forvarna­verð­laun VÍS hljóta fyrir­tæki sem þykja skara fram úr í örygg­is­málum og eru öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd. Verð­launað er í tveimur flokkum og er horft til sterkrar örygg­is­menn­ingar og mark­vissrar vinnu við að efla öryggis­vitund og örygg­is­hegðun í úthlutun.

Misstir þú af forvarna­ráð­stefnu VÍS? Engar áhyggjur — fáðu aðgang að fyrir­lestrum ráðstefn­unnar.

Forvarna­verð­laun VÍS 2024 í flokki stærri fyrir­tækja

Skinn­ey-Þinganes

Allir hafa rödd í örygg­is­veg­ferð Skinn­ey-Þinganes og engin vinnu­slys hafa orðið þar í tólf mánuði. Þar er fyrsta flokks vinnu­að­staða bæði í land­vinnslu og á sjó og mikil áhersla lögð á öryggi og heilsu­vernd starfs­fólks. Forvarnir byggjast á áhættumati starfa sem er fram­kvæmt með reglu­bundnum hætti, atvika­skrán­ingar færðar í ATVIK kerfið og merk­ingar og ferlar i kringum tæki eru mjög skýrir. Eigið eldvarn­ar­eft­irlit er virkt og unnið er við það að koma gátlistum fyrir það í snjallsíma­for­rit. Fyrir­tækið nýtir sér staf­rænar lausnir við fræðslu­starf og er þátt­tak­andi í Öldu Öryggi sem heldur utan um öryggi á sjó með sjálf­bærni í fyrir­rúmi.

Á mynd­inni eru frá vinstri: Þorvaldur Þorsteins­son, viðskipta­stjóri fyrir­tækja­við­skipta VÍS, Eik Aradóttir, verk­efna­stjóri öryggis og forvarna og Inga Jóna Ingva­dóttir gæða­stjóri hjá Skinney og Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS.

Forvarna­verð­laun VÍS 2024 í flokki minni fyrir­tækja

Faxa­flóa­hafnir

Örygg­is­menning í hávegum höfð hjá Faxa­flóa­höfnum. Starfs­fólk meðvitað um mikil­vægi öryggis, slysa­tíðni lág og fræðsla stór þáttur í störfum allra. Þau hafa innleitt ECO online gagna­grunninn ásamt QR kóðum til að auka á öryggi í tengslum við meðferð hættu­legra efna. Eru með vefsjá sem sýnir alla staði við höfnina og stöðuna á örygg­is­málum og örygg­is­búnaði tengdum vinnu­að­stæðum. Eftirlit er gott, starfs­menn taka þátt í áhættumati, skráning atvika og ábend­inga vel virk og auðvelt að bregðast við ef eitt­hvað má betur fara.

Á mynd­inni eru frá vinstri: Guðmundur Peder­sen, viðskipta­stjóri fyrir­tækja­við­skipta VÍS, Júlíus V. Guðna­son, örygg­is­nefnd­ar­maður, Jóhann Páll Guðna­son, örygg­is­nefnd­ar­maður, Gunnar Tryggva­son, hafn­ar­stjóri, Jón Þórir Sveins­son, örygg­is­stjóri, Egill Teitur Eysteinsson og Þórdís B. Sigur­gests­dóttir örygg­is­trún­að­ar­menn og Lovísa Ólafs­dóttir, sérfræð­ingur forvarna fyrir­tækja VÍS.

Viður­kenning fyrir árangur í örygg­is­málum í flokki minni fyrir­tækja

Snæland Grímsson

Hjá Snælandi Gríms­syni starfar samheldinn hópur þar sem örygg­is­menning er sterk og lítið verið um slys í gegnum árin. Öll atvik eru tekin fyrir á stjórn­ar­fundum og er unnið úr þeim jafnóðum þar sem stjórn­endur bera ábyrgð á úrlausnum atvika. Mikil áhersla er lögð á öfluga flota­stjórnun, en hún er undir­staða örygg­is­stjórn­unar og forvarna. Nýtt húsnæði fyrir­tæk­isins hefur það markmið að sameina rekstr­arein­ingar, auka yfir­sýn, samþætta örygg­is­menn­ingu og koma örygg­is­málum inn í betri ramma. Nútímaleg þrif­að­staða er ásamt aðstöðu fyrir bílstjóra til að yfir­fara bílana. Hver bílstjóri ber ábyrgð á að yfir­fara örygg­is­þætti sinnar bifreiðar hverju sinni samkvæmt verk­ferlum fyrir­tæk­is­ins. Sjálf­bærni er þeim hugleikin og leggur fyrir­tækið m.a. áherslu á að vera með nýjan bíla­flota í umferð til að bæði tryggja öryggi og um leið draga úr kolefn­is­sporum. Snæland Grímsson uppfyllir Euro 6 stað­alinn hvað varðar útblástur.

Á mynd­inni eru frá vinstri: Guðný Helga Herberts­dóttir, forstjóri VÍS, Kristel Björk Þóris­dóttir, rekstr­ar­stjóri, Hall­grímur Lárus­son, fram­kvæmd­ar­stjóri og eigandi og Guðmundur Ólafs­son, forstöðu­maður fyrir­tækja­við­skipta VÍS.

Viður­kenning fyrir árangur í örygg­is­málum í flokki minni fyrir­tækja

Tengir

Stjórn­endur Tengir eru meðvit­aðir um mikil­vægi þess að örygg­ismál séu alltaf á dagskrá. Hugs­un­ar­háttur stjórn­enda er þannig að það er ætlast til þess að fólk taki þann tíma sem þarf til verksins og geri hlutina vel og tryggi öryggi sitt og annarra. Allt er gert til að reyna að koma í veg fyrir tjón. Tengir nýtir sér tæknina til að auka á öryggi m.a. vegg­skanna, sjón­tæki, GPS tækni og teikn­ingar í öllum fram­kvæmdum. Þar sem vinna starfs­fólks fer fram fyrir utan sjálfan vinnu­staðinn eru stað­setn­inga­bún­aður í tækjum, bifreiðum og dýrari smátækjum til að hægt sé að sjá stað­setn­ingu þeirra ef eitt­hvað kemur upp á. Með mark­vissri vinnu síðustu ár þar sem áherslan hefur verið á forvarnir og öryggi en ekki síst skýrari samskipti hefur tekist að koma á breyttum hugs­un­ar­hætti.

Á mynd­inni eru frá vinstri: Þorvaldur Þorsteins­son, viðskipta­stjóri fyrir­tækja­við­skipta VÍS, Gunnar Björn Þórhalls­son, forstjóri og eigandi, Aðal­heiður Björk Vilhelms­dóttir, eigandi og Arna Rut Gunn­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri hjá Tengir og Guðný Helga Herberts­dóttir forstjóri VÍS.

Viður­kenning fyrir árangur í örygg­is­málum í flokki stærri fyrir­tækja

Norður­orka

Hjá Norður­orku hefur náðst frábær árangur í aukinni vitund­ar­vakn­ingu þegar kemur að forvörnum sem hefur skilað sér í færri slysum og tjónum ásamt góðri örygg­is­menn­ingu. Örygg­ismál eru fastur liður á starfs­manna­fundum og Norður­orka notar ATVIK atvika­skrán­ing­ar­kerfi VÍS mark­visst tengt forvörnum og inn í áhættumatið sem allt starfs­fólk tekur þátt í. Merk­ingar eru á öllum vinnusvæðum, áhersla er lögð á lýðheilsu og aðstöðu starfs­fólks og fræðslumál skipa stóran sess hjá fyrir­tæk­inu. Fyrir­tækið er meðvitað um að vinnu við að bæta örygg­ismál lýkur aldrei og því eru alltaf einhver tæki­færi til að gera enn betur.

Á mynd­inni eru frá vinstri: Lovísa Ólafs­dóttir sérfræð­ingur forvarna fyrir­tækja VÍS, Gauti Þór Grét­arsson verk­efna­stjóri örygg­is­mála, Friðþór Smárason örygg­is­nefnd­ar­maður, Gunnur Ýr Stef­áns­dóttir örygg­is­nefnd­ar­maður, Anna Klara Hilm­ars­dóttir full­trúi fram­kvæmda­sviðs, Guðlaug Erla Ágústs­dóttir örygg­is­nefnd­ar­maður, Eyþór Björnsson forstjóri og Elías Wium örygg­is­nefnd­ar­maður.

Viður­kenning fyrir árangur í örygg­is­málum í flokki stærri fyrir­tækja

Múla­þing

Hjá Múla­þingi liggur áherslan í sjálf­bærni í þekk­ingaröflun, þekk­ing­ar­sköpun og þekk­ing­ar­miðlun og áhersla er á að draga úr sóun. Helsta áskor­unin eftir samein­ingu hefur legið í miðlun upplýs­inga og fræðslu ásamt því að tryggja að það náist til allra, en langt er á milli þétt­býla. Með áherslu á staf­ræna tækni hefur náðst mikill árangur og er innri fræðsla sterk sem nær yfir stórt svæði, til ólíks starfs­fólks í ólíkum atvinnu­greinum. Eftir að Múla­þing tók upp ATVIK atvika­skrán­ing­ar­kerfi VÍS sem hluta af örygg­is­stjórnun sveit­ar­fé­lagsins hafa mörg umbóta­verk­efni orðið til. Til að mynda hefur verið farið í almennar hálku­varnir og lagfær­ingar á húsnæði eftir ábend­ingar þar. Skrifleg forvarnar- og viðbragðs­áætlun vegna streitu, kuln­unar og vanlíðan er til staðar og hafin innleiðing á heilsu­efl­andi vinnu­stað.

Dagskrá

13:00

Setning Forvarnaráðstefnu 2024

Guðný Helga Herbertsdóttir

Guðný Helga Herbertsdóttir

Forstjóri VÍS

13:06

Getur bætt öryggismenning aukið sjálfbærni í verkum?

Ingólfur Gissurarson

Ingólfur Gissurarson

Forstöðumaður gæða- og öryggismála hjá Íslenskum aðalverktökum

13:30

Öryggisstjórnun á tímum náttúruhamfara

Páll Erland

Páll Erland

Forstjóri HS Veitna

13:54

Var slysalaust?

Ólafur Sæmundsson

Ólafur Sæmundsson

Framkvæmdastjóri TVT - Traust verktak

14:04

Forvarnaverðlaun VÍS

Guðmundur Ólafsson

Guðmundur Ólafsson

Forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta VÍS

14:25

Kaffihlé

14:45

Vottun – er það leiðin að árangri?

Helgi Haraldsson

Helgi Haraldsson

Öryggisstjóri Sjúkrahúsinu á Akureyri

15:08

Eru þjálfuð samskipti lykillinn að öryggi í starfi?

Árni Gunnarsson

Árni Gunnarsson

Framkvæmdastjóri Olíudreifingar

15:32

Hið góða, hið illa og gervigreindin

Páll Rafnar Þorsteinsson

Páll Rafnar Þorsteinsson

Verkefnastjóri hjá Siðfræðistofnun

16:00

Ráðstefnulok og léttar veitingar

Fundarstjóri

Brynja Þorgeirsdóttir

Brynja Þorgeirsdóttir

Lektor og fyrrverandi fjölmiðlakona

Örviðtöl verða birt á milli erinda við eftir­talda einstak­linga:

  • Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. 

  • Bjarn­heiður Halls­dóttir, formaður Samtaka ferða­þjón­ust­unnar.

  • Hanna Sigríður Gunn­steins­dóttir, forstjóri Vinnu­eft­ir­lits­ins.

  • Harald Teits­son, fram­kvæmda­stjóri Teits Jónas­sonar.

  • Heiðrún Lind Marteins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyrir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

  • Jón Gunnar Jóns­son, forstjóri Samgöngu­stofu.

  • Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðnað­ar­ins.

Fyrir­les­arar

Ingólfur Giss­ur­ar­son, forstöðu­maður gæða- og örygg­is­mála hjá Íslenskum aðal­verk­tökum

Getur bætt öryggismenning aukið sjálfbærni í verkum? Farið verður yfir nálgun Íslenskra aðalverktaka á heildstæðri stjórnun á verkstöðum með áherslu á stjórnun öryggismála sem leiðir af sér aukna umhverfis- og gæðahugsun með sjálfbærni að leiðarljósi.

Páll Erland, forstjóri HS Veitna

Öryggisstjórnun á tímum náttúruhamfara. Í erindinu fjallar Páll um þær áskoranir sem stjórnendur og starfsmenn HS Veitna standa frammi fyrir á tímum náttúruhamfara.

Ólafur Sæmunds­son, fram­kvæmda­stjóri TVT - Traust verktak

Var slysalaust? Ólafur fer yfir daglegar hættur og áskoranir í byggingariðnaði eins og mismunandi aðstæður, undirbúning, viðhorf og veðurfar.

Helgi Haralds­son, örygg­is­stjóri Sjúkra­húsinu á Akur­eyri

Vottun – er það leiðin að árangri? Í erindi sínu fjallar Helgi um þá vegferð sem Sjúkrahúsið á Akureyri hefur verið á síðustu ár til að efla forvarnir og auka öryggi m.a. í gegnum vottanir á starfseminni. Sjúkrahúsið er í dag með nokkrar vottanir og rekur Helgi dæmi um hvaða árangri það hefur skilað með tilliti til forvarna.

Árni Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Olíu­dreif­ingar Íslands

Eru þjálfuð samskipti lykillinn að öryggi í starfi? Í erindi sínu fer Árni yfir hvernig samskipti þarf að þjálfa þannig að öryggi sé tryggt í störfum sem krefjast samstarfs. Það er ekki alltaf víst að yfirmaðurinn hafi rétt fyrir sér og hvernig er þá hægt að fá alla til að tjá sig þannig að besta útkoman verði að veruleika.

Páll Rafnar Þorsteins­son, verk­efna­stjóri hjá Siðfræði­stofnun

Hið góða, hið illa og gervigreindin. Í erindi sínu fjallar Páll um siðferðilegar áskoranir sem fylgja þróun og hagnýtingu gervigreindartækni. Viðbúið er að þessi tækni muni hafa víðtæk, djúpstæð og ófyrirséð áhrif á mannleg samfélög. Hún felur í sér mikil tækifæri en einnig mikla áhættu.