Horfa á myndband

Forvarna­ráð­stefna VÍS

Hvernig mætum við því óvænta — af öryggi?
Harpa 8. febrúar 2023 frá kl. 13-16.

Forvarna­ráð­stefna VÍS er haldin árlega en á ráðstefn­unni er fjallað er um örygg­ismál og forvarnir fyrir­tækja og stofnana frá öllum hliðum. Vel valdir sérfræð­ingar og stjórn­endur á þessu sviði deila reynslu sinni með ráðstefnu­gestum.

Ráðstefnan hefur skapað sér sess sem einn fjöl­sótt­asti viðburður sinnar tegundar á Íslandi.

Forvarna­verð­laun VÍS hlýtur það fyrir­tæki sem þykir skara fram úr í örygg­is­málum og er öðrum fyrir­tækjum góð fyrir­mynd. Verð­launað er fyrir sterka örygg­is­menn­ingu þar sem unnið er mark­visst í að efla öryggis­vitund og örygg­is­hegðun. Að þessu sinni hlaut rafverktakinn Rafeyri forvarna­verð­laun VÍS.

Rafeyri hlaut Forvarna­verð­laun VÍS 2023

Stjórn­endur Rafeyrar eru meðvit­aðir um hvaða örygg­is­menning ríkir innan vinnu­stað­arins og hvaða áhrif þeir hafa á hana. Örygg­is­stjórnun innan fyrir­tæk­isins á sér djúpar rætur og nær í gegnum alla starf­sem­ina. Rík áhersla er lögð á að allt starfs­fólk sé meðvitað um áhættu­þætti í umhverfinu með örygg­is-og forvarna­þjálfun. Starfs­fólk er metið út frá kunn­áttu og þekk­ingu. Það fær svo ákveðna einkunn í kerfi sem Rafeyri hefur þróað og aðlagað að starf­sem­inni. Þannig er tryggt að réttur einstak­lingur sé valinn í verk­efnin.

Einnig hefur Rafeyri þróað app fyrir verk­færin sem heldur utan ástand þeirra. Með því er tryggt að öryggið sé í fyrir­rúmi, þ.e. að öll verk­færi séu í góðu ásig­komu­lagi og endur­nýjuð á réttum tíma. Tíðni vinnu­slysa á starfs­fólki Rafeyrar er með því lægsta sem sést hjá VÍS allt frá upphafi — en Rafeyri hefur verið í viðskiptum hjá VÍS í tæp 30 ár.

Gentle Giants fékk viður­kenn­ingu fyrir árangur í örygg­is­málum

Gentle Giants Whale Watching er eitt þriggja fyrir­tækja sem hlaut tilnefn­ingu til forvarna­verð­launa VÍS 2023

Gentle Giants er fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki á Húsavík með langa sögu. Fyrir­tækið gerir út á að þjón­usta og sinna allri sjáv­ar­tengdri ferða­þjón­ustu.

Ofur áhersla er lögð á fræðslu og þjálfun starfs­fólks í örygg­is­þáttum, enda er ábyrgðin mikil að sigla með farþega út á Skjálf­anda­flóa.

Við erum stolt af samstarfinu við Gentle Giants og óskum starfs­fólki fyrir­tæk­isins inni­lega til hamingju með tilnefn­ing­una!

OR fékk viður­kenn­ingu fyrir árangur í örygg­is­málum

Orku­veita Reykja­víkur er eitt þriggja fyrir­tækja sem hlaut tilnefn­ingu til forvarna­verð­launa VÍS árið 2023.

Orku­veita Reykja­víkur er samsteypa fyrir­tækja með fjögur dótt­ur­félög þ.e. Veitur, en það sér um að leiða rafmagn inn í húsin, vatns­veitur og fráveitu. Síðan sér Orka nátt­úr­unnar um að fram­leiða rafmagn á háhita­svæði og einnig heitt vatn sem hún selur til Veitna. Ljós­leið­arinn sér um hágagna og háhraða teng­ingu sem leidd er inn á öll heim­ili. Yngsta fyrir­tækið er síðan Carb Fix sem gerðar eru miklar vænt­ingar til þegar litið er til umhverfis og lofts­lags­mála. Í samsteyp­unni allri vinna um 570 manns.

Örygg­ismál er fyrst á dagskrá allra funda og á ábyrgð alls starfs­fólks. Lögð er áhersla á að búa starfs­mönnum heilsu­sam­legan vinnu­stað þar sem andleg, líkamleg og félagsleg vellíðan er í fyrir­rúmi.

Við erum stolt af samstarfinu við Orku­veitu Reykja­víkur og dótt­ur­fé­lög. Óskum við starfs­fólki fyrir­tækj­anna inni­lega til hamingju með tilnefn­ing­una!

Dagskrá

13:00

Setning Forvarnaráðstefnu 2023

Guðný Helga Herbertsdóttir

Guðný Helga Herbertsdóttir

Forstjóri VÍS

13:15

Hvernig virkjum við samfélagið í heild? Sagan um hjartahlauparann

Grethe Tomas

Grethe Tomas

Verkefnastjóri Trygfonden í Danmörku

13:40

Hvað einkennir árangursríkar forvarnir?

Sigríður Björk Guðjónsdóttir

Sigríður Björk Guðjónsdóttir

Ríkislögreglustjóri

14:05

Forvarnaverðlaun VÍS

Guðmundur Ólafsson

Guðmundur Ólafsson

Forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta VÍS

14:20

Kaffihlé

14:45

Hvernig eflum við öryggi og heilsu starfsmanna með breyttri öryggismenningu?

Marc De Greef

Marc De Greef

Framkvæmdastjóri Prevent í Brussel

15:15

Reynslusaga úr fyrirtæki

15:25

Nýjar leiðir í forvarna- og öryggismálum

Helga Rún Jónsdóttir

Helga Rún Jónsdóttir

Fulltrúi í gæða- og öryggisdeild hjá Festi

16:00

Ráðstefnulok og léttar veitingar

Fundarstjóri

Sigmundur Ernir Rúnarsson

Sigmundur Ernir Rúnarsson

Fjölmiðlamaður og rithöfundur

Hvernig eflum við öryggi og heilsu starfs­manna með breyttri örygg­is­menn­ingu?

Marc De Greef, eigandi og fram­kvæmda­stjóri belg­íska ráðgjafa­fyr­ir­tæk­isins Prevent.

Hvernig hægt er að nota örygg­is­menn­ingu til þess að efla heilsu og öryggi starfs­manna. Marc veltir upp mikil­vægi  örygg­is-, umhverfis- og heil­brigð­is­stjórn­unar og fer yfir upplifun starfs­manna gagn­vart mála­flokknum og hver staðan er hjá fyrir­tækjum.

Til þess að ná árangri er mikil­vægt að mæla og greina, sérstak­lega ef ná á mark­vissum árangri í að styrkja örygg­is­menn­ingu með sérstakri áherslu á að breyta hegðun allra starfs­manna.

Hvað einkennir árang­urs­ríkar forvarnir?

Sigríður Björk Guðjóns­dóttir, ríkis­lög­reglu­stjóri

Í erindi sínu fer Sigríður Björk yfir hvaða leiðir lögreglan hefur nýtt sér til að ná árangri í forvörnum m.a. í tengslum við heim­il­isof­beldi, kynferð­isof­beldi og umferðarör­yggi.

Hvernig virkjum við samfé­lagið í heild? Sagan um hjarta­hlaup­arann

Grethe Tomas, verk­efna­stjóri, forvarna­sam­tak­anna Tryg­fond­en í Danmörku

Í erindi sínu fer Grethe yfir hvernig félagið hefur haft áhrif á samfé­lagið með verk­efninu Hjarta­hlaup­ar­inn. Með verk­efninu eru Danir hvattir til þess að huga að náung­anum og virkja þá til að bjarga manns­lífum. Þetta er áhrifa­ríkt samfé­lags­átak þar sem samtaka­mátt­urinn er í aðal­hlut­verki.

Nýjar leiðir í forvarna- og örygg­is­málum

Helga Rún Jóns­dóttir, full­trúi í gæða- og örygg­is­deild Festi

Í erindi sínu fer Helga Rún yfir hvernig unnið er heild­stætt að öryggi hjá Festi. Hún fer yfir mikil­vægi skil­virks áhættumats en á sama tíma mikil­vægi þess að áhættumat sé auðskilið. Helga fer einnig yfir mikil­vægi góðs aðgengis að fræðslu starfs­manna ásamt öðrum fjöl­breyttum leiðum til að efla öryggis­vitund starfs­manna.