Fjárhagsupplýsingar
Fjárhagsupplýsingar Skaga, móðurfélags VÍS trygginga. Eldri fjárhagsupplýsingar frá því að Vátryggingafélag Íslands var skráð í Kauphöll Íslands.
Viðsnúningur hjá VÍS heldur áfram
Ávarp Guðnýjar Helgu Herbertsdóttur, forstjóra VÍS trygginga hf.
Árið 2025 var eitt besta ár í tryggingarekstri í sögu VÍS. Við náðum kraftmiklum vexti í tryggingastarfsemi, bættum rekstur og styrktum stöðu félagsins til framtíðar. Tekjur af vátryggingasamningum jukust verulega milli ára eða 9,5% og einnig var mikil aukning í sölu líf- og sjúkdómatrygginga og jukust iðgjöld þar um 12,2%. Þá hefur kostnaðarhlutfall haldið áfram að lækka og nemur nú 18,1%. Samsett hlutfall batnaði áfram og nam 90,7%. Afkoma af tryggingastarfseminni tvöfaldast milli ára og nam tæpum 3 milljörðum kr en það er besta niðurstaða af tryggingastarfsemi í sögu félagsins. Þetta endurspeglar markvissa áherslu okkar á hagkvæman rekstur og arðbæran vöxt.

Árs- og samfélagsskýrsla
Við viljum eiga góð samskipti
við fjárfesta, hluthafa, greiningaraðila og fjölmiðla
Allar flagganir skulu berast til regluvarðar

Regluvörður
Fjárfestatengill


