Hringdu í 560 5000!

Bíla­hjálp VÍS

Þú tryggir góða stemningu í bílnumVið tryggjum bílahjálp ef eitthvað kemur upp á.

Með bíla­hjálp VÍS færðu aðstoð við það helsta, til dæmis rafmagn, eldsneyti og læstar hurðir.

Vonandi kemstu klakk­laust allra þinna ferða en ef eitt­hvað kemur upp, mundu þá eftir bíla­hjálp­inni.

Hringdu í síma 560 5000 til að panta aðstoð. Krókur er þjón­ustu­aðili Bíla­hjálpar VÍS.

Hringdu í Bílahjálp VÍS ef:

  • Rafgeym­irinn er dauður og þú þarft að fá start.

  • Þú þarft aðstoð við að skipta um dekk. Einungis er hægt að aðstoða ef vara­dekk er í bílnum.

  • Bíllinn er bens­ín­laus.

  • Hurðir eða læsingar eru frosnar.

  • Bíllinn er læstur og þú kemst ekki inn í hann.

Þjónustustaðir Bílahjálpar VÍS

  • Höfuð­borg­ar­svæðið

  • Akranes

  • Borg­arnes

  • Reykjanes

  • Selfoss

  • Hvera­gerði

  • Akur­eyri

  • Egils­staðir

  • Höfn

  • Ísafjörður

Athugið að þjón­ustan er aðeins veitt á ofan­greindum þétt­býl­is­stöðum og nær því til dæmis hvorki til Reykja­nes­braut­ar­innar né Hval­fjarð­ar­gang­anna.

Ekki er hægt að nota Bílahjálp VÍS ef:

  • Bíllinn er 15 ára eða eldri. Á bæði við um aðstoð á staðnum og flutn­ing.

  • Bíllinn er atvinnu­tæki, yfir 3,5 tonn að þyngd og/eða lengri en sjö metrar.

  • Bíllinn er fastur í snjó, drullu eða sandi.

  • Bíllinn hefur lent í tjóni.

Nánari upplýsingar

  • Viðskipta­vinir okkar sem eru í brons, silfur, gull eða demants vild­ar­þrepi geta fengið aðstoð hjá Bíla­hjálp VÍS þrisvar sinnum á ári. Þú getur séð upplýs­ingar um stöðu þína í vild­ar­kerfi VÍS í VÍS appinu.

  • Bíla­hjálpin er fyrir fólks­bíla og er veitt á tilteknum stöðum.

  • Þegar ekki er hægt að veita aðstoð á staðnum veitir Bíla­hjálp VÍS 50% afslátt af flutn­ingi með Króki á verk­stæði innan sama þjón­ustu­svæðis.

  • Full gjald­skrá Króks gildir ef flytja þarf fólks­bíla á verk­stæði utan skil­greindra þjón­ustu­svæða.

  • Dagtaxti gildir virka daga frá kl. 8-17. Kvöld- og nætur­vinna er frá kl.17-8 sem og allan sólar­hringinn laug­ar­daga, sunnu­daga og helgi­daga.

  • Sjá nán­ari upp­lýs­ing­ar í þjón­ustu­skil­mála.

Verð­skrá

Þjónusta

Dagtaxti

Næturvinna og frídagar

Símaaðstoð

Ókeypis

Ókeypis

Aðstoð á þjónustustöðum

Ókeypis

Ókeypis

Flutningur með Króki* (verð með 50% afslætti)

12.250 kr.

19.500 kr.

*Miðað við gjaldskrá Króks í janúar 2026