Viðsnún­ingur hjá VÍS heldur áfram

Ávarp Guðnýjar Helgu Herberts­dóttur, forstjóra VÍS trygg­inga hf.

Árið 2025 var eitt besta ár í trygg­ing­a­rekstri í sögu VÍS. Við náðum kraft­miklum vexti í trygg­inga­starf­semi, bættum rekstur og styrktum stöðu félagsins til fram­tíðar. Tekjur af vátrygg­inga­samn­ingum jukust veru­lega milli ára eða 9,5% og einnig var mikil aukning í sölu líf- og sjúk­dóma­trygg­inga og jukust iðgjöld þar um 12,2%. Þá hefur kostn­að­ar­hlut­fall haldið áfram að lækka og nemur nú 18,1%. Samsett hlut­fall batnaði áfram og nam 90,7%.

Afkoma af trygg­inga­starf­sem­inni tvöfaldast milli ára og nam tæpum 3 millj­örðum kr en það er besta niður­staða af trygg­inga­starf­semi í sögu félags­ins.

Þetta endur­speglar mark­vissa áherslu okkar á hagkvæman rekstur og arðbæran vöxt.

Guðný Helga Herbertsdóttir

Kaflar ávarpsins

Við viljum eiga góð samskipti

við fjár­festa, hlut­hafa, grein­ing­araðila og fjöl­miðla

Allar flagg­an­ir skulu ber­ast til regluvarðar

Regluvörður

Vig­dís Hall­dórs­dótt­ir

Staðgeng­ill: Guðmundur Magnússon

reglu­vor­d­ur@vis.is

Fjár­festa­teng­ill