Ábyrgðartjón ökutækis sem bætt er að hluta
Upplýsingar fyrir tryggingartaka
Samkvæmt okkar mati bera báðir ökumenn tjónsins einhverja ábyrgð á óhappinu. Tjón mótaðila þíns er því bætt að hluta til úr lögboðinni ábyrgðartryggingu þinni. Að sama skapi bætir tryggingafélag mótaðila þíns tjónið þitt að hluta.
Hér að neðan höfum við tekið saman helstu upplýsingar um næstu skref sem við vonum að nýtist þér.
