Hoppa yfir valmynd

Tjónasaga

Tjónasaga þín er skrá yfir þau tjón sem þú hefur lent í á meðan þú hefur verið í viðskiptum við VÍS.

Öll tryggingafélög halda utan um tjónasögu sinna viðskiptavina.

Þegar þú leitar eftir tilboði í tryggingarnar þínar, óska tryggingafélög gjarnan eftir því að fá afrit af tjónasögu þinni. Tilgangurinn er að geta veitt þér rétt verð í tryggingarnar, byggt á því hversu líklegt er að þú lendir í tjóni.

Tjónasaga þín kemur fram á tjónayfirliti. Þar getur þú valið að fá tjónasögu þína yfir eitt ár, þrjú ár eða fimm ár senda í tölvupósti (pdf eða excel skjal).

Hafðu endilega samband við okkur ef eitthvað er óljóst og við aðstoðum þig með ánægju.