Við tökum á móti Tjóni með þér

Tjón Tjónsson getur skapað aðstæður sem raska daglegu lífi okkar. Við viljum aldrei fá Tjón í heimsókn — en hann kemur óboðinn og oft þegar síst er von á honum. Hann sér tækifæri þegar við hin gerum það ekki. Hann sefur aldrei, fer ekki í manngreinarálit og getur verið ansi afkastamikill. 

Sem betur fer er Tjón Tjónsson ekki til – en því miður eru óhöppin raun­veruleg og hluti af lífinu.

Er Tjón heima?

Frá upphafi höfum við búið okkur undir það sem þú býst ekki við. Vonandi gerist ekkert, en ef eitt­hvað kemur upp á erum við til staðar — tilbúin að mæta því með þér.

Flutningar framundan

Flutn­ingar fela í sér ótal verk­efni. Pakka öllu niður og koma því fyrir á nýjum stað. Svo þarf að huga að netinu, rafmagni og öllu hinu. Trygg­ing­arnar eiga það þó til að gleym­ast!

Kaupa fasteign

Þegar þú kaupir fast­eign mælum við með því að þú skoðir kaup á nokkrum trygg­ingum, bæði fyrir fast­eignina sjálfa en líka fyrir innbúið þitt og aðra lausa­muni.

Eiga eða leigja

Ef þú ert á leigu­markaði á eigandi fast­eign­ar­innar að vera með bruna­trygg­ingu og gott er að hafa upplýs­ingar um hvort húseig­enda­trygging sé einnig til staðar. Þú sérð um að kaupa trygg­ingar fyrir fjöl­skylduna þína, innbú og aðra lausa­muni.

Ferðalög

Hvort sem þú ert að fara í frí, nám, vinnu­ferð eða vegna annarra erinda, mælum við með því að þú farir yfir það hvort þú sért með ferða­trygg­ingar sem henta þér.

Geymslur

Allt dótið sem er í geymsl­unni á heim­ilinu er tryggt með heim­il­is­trygg­ing­unni þinni. 

Tjón Tjónsson situr fyrir svörum