Tilkynna misferli

Hafir þú vitn­eskju eða grun um hugs­an­legt misferli sem tengist starf­semi VÍS með einhverjum hætti hvetjum við þig til að láta okkur vita. Þannig getur þú aðstoðað við að upplýsa um brot sem valdið geta viðskipta­vinum, félaginu og samfé­laginu miklu tjóni.

Allir sem hafa orðið varir við hugs­an­legt misferli sem snýr að starf­semi VÍS geta sent inn tilkynn­ingu. Ábending verður að byggja á rökstuddum grun en slíkur grunur þarf þó ekki að vera hafinn yfir allan vafa. Farið verður yfir allar ábend­ingar sem berast og mál skoðað nánar af misferl­isteymi félagsins teljist tilefni til.

Móttaka tilkynn­inga fer fram í gegnum sérstakt kerfi sem er hannað til að vernda tilkynn­anda (upp­ljóstr­ara) og þær upplýs­ingar sem fram koma í tilkynn­ingu. Tilkynn­endur eru hvattir til þess að koma fram undir réttu nafni en kerfið veitir þó mögu­leika á áfram­hald­andi samskiptum við þá sem kjósa að njóta nafn­leyndar. Við höfum sett okkur verklags­reglur sem skjalfesta verklag við meðferð tilkynn­inga um meint misferli og vernd uppljóstr­ara.

Athugið! Eftir að þú hefur sent inn tilkynn­ingu birtast skilaboð á skjánum með auðkenni og aðgangs­orði. Mikil­vægt er að þú skráir þessar upplýs­ingar hjá þér á öruggan hátt svo þú getir lesið þau skilaboð sem þér berast frá misferl­isteymi félags­ins. Öllum tilkynn­ingum er svarað.

Hugsanlegt misferli?

Hafðu samband og láttu okkur vita

Það er samfé­lagsleg skylda VÍS að leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir trygg­inga­svik. Trygg­inga­svik geta leitt til hárra og órétt­mætra útgjalda sem viðskipta­vinir trygg­inga­fé­laga bera skaðann af, til dæmis með hærri greiðslu fyrir trygg­ingar sínar. Til trygg­inga­svika telst til dæmis að segja ósatt til um atburð eða það að ýkja tjónsat­burð, allt í þeim tilgangi að fá greiddar út bætur eða hækkun á bótum og þannig hagnast á tjónsat­burði umfram það sem er rétti­legt. Hvers kyns aðstoð við slíka iðju getur einnig talist til trygg­inga­svika og sbr. m.a. 248 gr. Almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940 getur brot af þessum toga varðað allt að 6 ára fang­elsi. Þar sem trygg­inga­félög á Íslandi afgreiða tugi þúsunda tjóna á hverju ári hafa mörg mál sem eru ýkt lítil­lega jafn mikil samfé­lagsleg áhrif og færri stór mál.

Það er okkur ljúft og skylt að greiða út rétt­mætar bætur til tjón­þola og að tjón­þoli fá sitt raun­veru­lega tjón bætt en um leið skylda okkar að sjá til þess að krafan sé réttmæt og til þess höldum við uppi virku eftir­liti.