Notk­un­ar­skil­málar Ökuvísis

Ökuvísir er trygg­ing­ar­leið í ökutækja­trygg­ingum þar sem trygg­ing­ar­takar hjá VÍS trygg­ingum hf., kt. 670112-0470 (hér eftir nefnt „VÍS“), fá aðgang að sérsniðnu smáfor­riti (hér eftir „smá­for­rit­ið“) og mæli­tæki (hér eftir „mæli­tæk­ið“). Í Ökuvísi er bæði hægt að hafa lögboðna ábyrgð­ar­trygg­ingu ökutækis og kaskó­trygg­ingu ökutækis (hér eftir sameig­in­lega nefndar „öku­tækja­trygg­ing­ar“).

Mark­miðið með Ökuvísi er að auka umferðarör­yggi og fækka umferðaró­höppum. Í gegnum smáfor­ritið og mæli­tækið safnar VÍS ákveðnum upplýs­ingum um akst­urslag trygg­ing­ar­taka og annarra notenda tryggðs ökutækis (hér eftir „öku­tæk­ið“) og reiknar út akst­ur­s­ein­kunn eftir því hversu öruggur akst­urinn er. Akst­ur­s­ein­kunn ökutæk­isins hefur áhrif á það verð sem greitt er fyrir ökutækja­trygg­ingar. Trygg­ing­ar­taki og/eða aðrir notendur ökutæk­isins fá hvatn­ingu til að keyra vel og geta haft áhrif á verð ökutækja­trygg­inga með akst­urslagi og eknum kíló­metrum.

Um Ökuvísi gildir notk­un­ar­skil­máli þessi. Um ökutækja­trygg­ingar gilda skil­málar um lögboðna ábyrgð­ar­trygg­ingu BA10, skil­málar um ökutækja­trygg­ingu kaskó BK10 og almennur skil­máli YY10, eins og þeir standa á hverjum tíma.