Neyð­ar­þjón­usta VÍS

Við bjóðum upp á neyð­ar­þjón­ustu fast­eigna­tjóna. Ef þú lendir í óveð­ur­stjóni, vatns­tjóni, bruna eða öðru umfangs­miklu fast­eigna­tjóni og veist ekki hvert þú átt að snúa þér — getur þú hringt í neyð­ar­þjón­ustu okkar í síma 560 5000. Við erum á vakt allan sólar­hringinn og leið­beinum þér um næstu skref.

  • Reyndu að koma í veg fyrir frekara tjón og takmarka það sem þegar hefur orðið ef þú hefur mögu­leika á því.

  • Ef um vatns­tjón er að ræða þarftu að skrúfa fyrir vatns­inn­takið til að koma í veg fyrir frekara tjón.

  • Við mælum með að þú takir myndir af vett­vangi.

Á síðunni Viðbrögð við tjóni má sjá leið­bein­ingar um viðbrögð við öðrum tjónum.

Hringdu hvenær sem er

560 5000