Tjóna­skoðun með myndsím­tali

Hraðari og einfaldari tjóna­þjón­usta fast­eigna­tjóna.

Til að tryggja hraðari skoðun fast­eigna­tjóna bjóðum við viðskipta­vinum okkar upp á tjóna­skoðun með myndsím­tali. Sérfræð­ingur okkar skoðar ummerki tjónsins og tekur myndir af tjóninu með samþykki viðskipta­vinar á meðan á símtali stendur. Viðskipta­vinir sem lenda í fast­eigna­tjóni þurfa því ekki að verja tíma sínum í að taka myndir og senda á VÍS til skoð­unar.

Svona virkar þetta:

  • Viðskipta­vinur tilkynnir fast­eigna­tjón.

  • Sérfræð­ingur VÍS hringir í viðskipta­vininn og býður honum upp á myndsím­tal.

  • Í símtalinu fær viðskipta­vinur SMS frá VÍS með slóð til að smella á.

  • Viðskipta­vinur samþykkir að veita sérfræð­ingi VÍS aðgang til að taka myndir á meðan á símtalinu stendur.

  • Þar með getur sérfræð­ingur VÍS séð vett­vang tjóns með hjálp viðskipta­vinar í gegnum myndsím­talið. Hann tekur síðan myndir sem hjálpa við úrvinnslu tjóns­ins.

  • Mynd­irnar eru eingöngu nýttar við úrvinnslu tjónsins og er öll notkun í samræmi við persónu­vernd­ar­stefnu VÍS.