Mannauður
Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki. Við viljum breyta hvernig tryggingar virka og með því fækka slysum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að hún er framtíðin.
Starfsumhverfi
- Samgöngur. Við látum okkur umhverfið varða, því bjóðum við Samgöngusamning fyrir starfsmenn sem ferðast á vistvænan máta.
- Heilsa. Við vitum hvað heilsan okkar er dýrmæt, því bjóðum við upp á niðurgreiðslu á líkamsrækt. Þá tökum við virkan þátt í Lífshlaupinu og hjólað í vinnuna.
- Matur. Við vitum hvað næring er mikilvæg og því hafa starfsmenn okkar aðgengi að hollum og heitum mat í hádeginu. Við erum með framúrskarandi mötuneyti sem skorar hátt í ánægju ár eftir ár.
- Skemmtun. Öflugt starfsmannafélag STAVÍS stendur fyrir margvíslegum uppákomum ásamt því að reka sumarhús félagsins. Þá eru einnig starfræktir klúbbar og er þar stærstur golfklúbburinn okkar.